„Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Árni Gísli Magnússon skrifar 27. júlí 2026 22:30 Hallgrímur Jónasson í leik kvöldsins Vísir/Guðmundur Þórlaugarson KA og Þór gerðu markalast jafntefli í Akureyrarslag Bestu deildarinnar nú í kvöld. Leikurinn fór fram á nýjum velli KA sem var sérstaklega útbúinn fyrir þennan leik áður en framkvæmdir halda áfram.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var vonsvikinn að ná ekki að taka öll stigin sem voru í boði en fann þó ýmislegt jákvætt í leik liðsins. „Ég held að við séum aðeins súrari en Þórsararnir, vorum frábærir í fyrri hálfleik, komumst í svo margar stöður og fáum tvö, þrjú mjög góð færi. Hann (Aron Birkir Stefánsson) ver vel einu sinni og skutum í slá og mér fannst við einhvern veginn stjórna leiknum frá A til Ö. Síðan er seinni hálfleikur jafnari, við erum aðeins meira með boltann en sköpum ekkert voðalega mikið,“ segir Hallgrímur og bætir við: „Það svona leit út fyrir það þegar seinni hálfleikur var hálfnaður að þetta gæti farið 0-0 og það fór þannig og við erum svekktir með það en erum bara svona ánægðir með þennan viðburð. Það er fullt af fólki búið að leggja á sig mikla vinnu hérna við að láta þetta takast, æðisleg stemning hérna, stúkan og þetta var bara frábært. Því miður þá vantaði bara eitt sem var að skora mark, af því að við höldum hreinu hérna á heimavelli. Eins og ég segi, við sköpum sénsa en inn vildi boltinn ekki og þá fór bara 0-0.“ Valdimar Logi Sævarsson sem er uppalinn ungur leikmaður KA var nálægt því að skora sigurmark í uppbótartíma en skot hans endaði í varnarmanni á síðustu stundu. Algjört drauma augnablik fyrir hann og KA sem virtist vera eiga sér stað en allt kom fyrir ekki. „Já hann gerði það gífurlega vel, fer inn á völlinn og platar þá og svo héldu allir að hann myndi skjóta þá tekur hann auka snertingu og bara allt galopið en svona er þetta stundum. Hann er með mikil gæði á boltann og hann skorar bara næst“. KA sótti mikið upp hægra megin í fyrri hálfleik þar sem Adam Ægir Pálsson var fyrirferðarmikill en færanýtingin í teignum brást. „Já það er hárrétt. Við náðum að skapa virkilega margar góðar stöður og mér fannst við bara fara illa með það. Svo fórum við bara pínu illa líka með færin en Jakob (Héðinn Róbertsson) var nálægt því að skora, hann ver hann einu sinni, Aron (Birkir Stefánsson) vel. Eins og ég segi við sköpum nóg en við erum svona aðeins búnir að vera í vandræðum fram á við, bæði með Jakob Héðinn sem hefur spilað aðeins meiddur og við erum með þrjá langtíma meidda framherja þannig það er svona eitt af þeim atriðum sem við þurfum svona að vinna vel í, það er síðasti þriðjungur, en mér fannst við komast í frábærar stöður í dag, náðum bara ekki að klára það. Það er bara stundum þannig í fótbolta en strákarnir lögðu sig mikið fram og ég var mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli.“ Frábær stuðningur á nýjum velli KA spilaði leikinn nýjum velli félagsins sem er enn í byggingu og verður ekki endanlega tilbúinn fyrr en næsta sumar en var gerður tilbúinn fyrir leikinn í dag svo fleiri áhorfendur komist að. Hallgrímur segir stuðninginn í dag hafa verið frábæran. „Hann var bara æðislegur, frábær. Ég er bara stoltur af því að vera hluti af KA, það er bara þannig, og við erum búin að gera margt saman núna í nokkur ár og mér finnst þetta bara svona helvíti skemmtilegt skref. Stórt skref fyrir KA að spila fyrsta leikinn hérna og þetta mannvirki verður æðislegt. Ég held að séu verklok eftir rúmt ár og það er bara að koma frábær aðstaða í KA og við erum bara á leiðinni upp. Við verðum bara stærri og stærri og betri, betra félag, hvort sem það er í fótbolta eða handbolta eða blaki þá erum að standa okkur vel og við ætlum bara að verða ennþá sterkari.“ Adam Ægir Pálsson og Marcel Römer hafa bæst í hóp KA nú í sumarglugganum en mögulega eru fleiri leikmenn á leiðinni norður. „Það er ekkert ákveðið, eigum bara eftir að ræða saman. Ég fékk tvær styrkingar sem ég er mjög ánægður með og nú kemur Versló og við bara spjöllum um það en það bara kemur í ljós, ég hef ekkert svar við því akkúrat núna. Við erum með mun fleiri meiðsli en við ætluðum okkur þannig við erum svona reglulega að spjalla um hvað þarf. Ef menn eru að koma til baka þá nei, ef að menn eru ekki að koma til baka þá gætum við skoðað það“, sagði Hallgrímur að lokum.“
KA Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Fleiri fréttir Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Sjá meira