Íþróttadeild 365 spáir Víkingi Reykjavík sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en liðið hafnaði í níunda sæti á síðasta tímabili sem voru nokkur vonbrigði eftir að hafa landað Evrópusæti árið áður. Eftir að rokka upp og niður á milli deilda í rúma tvo áratugi eru Víkingar að spila þriðja sumarið í röð í efstu deild sem er fagnaðarefni í Fossvoginum. Víkingur hefur fimm sinnum orðið Íslandsmeistari, síðast árið 1991.
Serbinn Milos Milojevic stýrir Víkingum en hann tók einn við liðinu þegar samþjálfari hans, Ólafur Þórðarson, var rekinn á miðju síðasta sumri. Milos var fyrst aðstoðarmaður Ólafar þegar þeir komust upp um deild og náðu í Evrópusæti 2014. Milos er ungur og metnaðarfullur þjálfari sem er nú í fyrsta sinn að stýra liði í efstu deild einn eftir heilt undirbúningstímabil. Hann ætlar sér stóra hluti með Víkingsliðið á næstu árum.
LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ

Víkingar fá svo sannarlega erfiða byrjun á mótinu, aðeins Þróttur á erfiðari byrjun fyrir höndum. Víkingsliðið mætir fjórum af fimm efstu liðum síðasta sumars í fyrstu fjórum umferðunum áður en þeir halda svo til Eyja í fimmtu umferðinni. Verði Víkingar ekki klárir í byrjun móts geta þeir strax lent í eltingarleik um Evrópusæti en það er markmið þeirra í sumar. Fyrsta leiknum er beðið með mikilli eftirvæntingu þar sem Gary martin snýr aftur á sinn gamla heimavöll. Fyrstu þrír leikirnir eru líka sjónvarpsleikir en Víkingum hefur gengið afskaplega illa í beinum útsendingum.
02. maí: KR – Víkingur, Alvogen-völlurinn
08. maí: Víkingur – Stjarnan, Víkingsvöllur
13. maí: Breiðablik – Víkingur, Kópavogsvöllur
16. maí: Víkingur – Valur, Víkingssvöllur
21. maí: ÍBV – Víkingur, Hásteinsvöllur

Alan Lowing: Skoski miðvörðurinn átti ekki jafn gott sumar í fyrra og 2014 þegar hann var einn besti varnarmaður deildarinnar. Víkingsliðið munaði mikið um það og þá náðu hann og Milos Zivkovic engan veginn saman. Lowing var líka svolítið meiddur en hann hefur litið vel út á undirbúningstímabilinu. Víkingsliðið fær á sig aðeins of mikið af mörkum en ætli það að gera hluti í sumar þarf varnarleikurinn að vera betri og þar er Lowing lykillinn.
Viktor Bjarki Arnarsson: Miðjumaðurinn uppaldi er búinn að taka við fyrirliðabandinu og hefur litið afskaplega vel út í vetur. Víkingar vilja helst spila 4-4-2 og í því kerfi er Viktor Bjarki algjör lykilmaður á miðjunni. Hann er maðurinn sem tæklar og rífur kjaft og dregur liðið með sér fyrir utan að vera góður að dreifa spilinu á milli kanta. Viktor var ein af ástæðunum fyrir upprisu Víkingsliðsins seinni hluta sumars í fyrra og það verður að halda áfram.
Gary Martin: Árangur enska framherjans í markaskorun talar fyrir sig sjálfan. Ef Gary Martin fær að spila þá skorar hann mörk eins og hann hefur sýnt á undirbúningstímabilinu. Gríðarleg ábyrgð er á herðum Gary í Víkingsliðinu enda var miklu tjaldað til að fá hann úr vesturbænum. Ætli Víkingur að berjast í efri hlutanum þarf Gary að standa undir öllum væntingum og helst vera í baráttunni um gullskóinn. Hann ætlar sér reyndar alltaf að vera í baráttunni um hann.

Komnir:
Róbert Örn Óskarsson frá FH
Gary Martin frá KR
Alex Freyr Hilmarsson frá Grindavík
Iain Williamson frá Val
Óttar Magnús Karlsson frá Ajax
Farnir:
Hallgrímur Mar Steingrímsson í KA
Rolf Toft í Val
Thomas Nielsen til Danmerkur
Agnar Darri Sverrisson í Þór
Atli Fannar Jónsson í Fram
Finnur Ólafsson í Þrótt
Eitt af markmiðum Milosar Milojevic var að stöðva hina miklu leikmannaveltu sem hefur verið á milli ára hjá Víkingi og það tókst ágætlega. Þrír byrjunarliðsmenn fóru ásamt minni spámönnum og á móti var fyllt í þær stöður sem þurfti að fylla.
Hvalrekinn á fjörur Víkinga er auðvitað koma Gary Martin en kaupin á honum skýr skilaboð um hvert Víkingar ætla sér. Einnig sóttu þeir markvörð Íslandsmeistaranna til FH, en Róbert Örn Óskarsson fær nú töluvert meira að gera en undanfarin ár.
Alex Freyr Hilmarsson hefur verið einn besti leikmaður 1. deildarinnar undanfarin ár og hefur fengið stórt hlutverk í Víkingsliðinu á undirbúningstímabilinu. Hann var besti maður Grindavíkur í efstu deildinni þegar liðið féll fyrir fjórum árum, þá ungur að árum með sjö stoðsendingar.
Víkingar gráta brotthvarf Hallgríms Mars Steingrímssonar, sérstaklega þar sem eina sem Víkinga vantar, eða vantaði sárlega, lengi vel var örvfættur leikmaður. Hallgrímur sýndi flotta takta í fyrra og hefði verið fullkominn fyrir Víkingsliðið á vinstri kantinn í dag. Rolf Toft stóð ekki undir væntingum eftir frábært hálft sumar með Stjörnunni.
Vinstri kantstaðan gæti dreifst á nokkra en kominn er heim unglingalandsliðsmaðurinn Óttar Magnús Karlsson sem er mættur til að koma ferlinum almennilega af stað og spila meistaraflokksfótbolta. Það eru miklir hæfileikar í þeim dreng en hann er spurningamerki fyrir sumarið.

Í fótbolta er komið nýtt orðatiltæki, sem heitir að „taka Leicester á þetta“. Ef að eitthvað lið getur það á Íslandi, þá er það Víkingur Reykjavík.
Víkingar eru með ágætlega mannað lið og með menn í framlínunni sem geta skorað. Vissulega hefur Viktor Jónsson aldrei sannað sig sem markaskorari í efstu deild en það hefur Gary Martin gert. Hann er einn mesti markaskorari íslenskrar knattspyrnu síðustu ára.
Þá er Vladimir Tufegdzic mjög góður leikmaður en stóra spurningamerkið er hver verður í hjarta varnarinnar með Alan Lowing.
Í raun kæmi mér ekkert á óvart með Víking. Það gæti farið langt í ár eða lent í basli.

Spurningamerkin eru... varnarleikurinn og markvarslan. Víkingsliðið er að leka inn of mikið af mörkum en liðið vantar fastan miðvörð við hliði Alans Lowing sem er að spila mjög vel þessa dagana. Igor Taskovic, Halldór Smári Sigurðsson og Tómas Guðmundsson munu væntanlega skipta stöðunni á milli sín en hvort það sé gott á eftir að koma í ljós. Þrátt fyrir að spila með besta liði deildarinnar í fyrra fékk Róbert Örn Óskarsson nokkra gagnrýni en nú mun koma almennilega í ljós hversu góður hann virkilega er.

Verða Gary Martin og Viktor Jónsson sjóðheitir og óviðráðanlegir fyrir varnarlínur deildarinnar. Vladimir Tufegdzic heldur áfram að spila eins og í fyrra og í vetur og skilar líka mörkum og stoðsendingum af hægri kantinum. Viktor Bjarki og Iain Williamsson ná saman á miðjunni og mynda múrbrjótsparið sem þeim er ætlað að gera og varnarlínan nær að múra fyrir. Gangi þetta allt upp getur Víkingur hafnað á meðal þriggja efstu liðanna.
Í VERSTA FALLI:
Heldur liðið áfram að leka inn mörkum og það þarf alltaf að fara að elta í leikjum. Sóknarleikurinn verður of fyrirsjáanlegur eins og í úrslitum Lengjubikarsins á móti KR og framherjaparið helst ekki heilt allt tímabilið. Viktor Bjarki verður í meiðslum, en hann er meiddur þessa dagana, og Róbert Örn nær ekki að sanna sig í markinu. Eins gott og Víkingsliðið getur verið getur það hæglega sogast í annað vonbrigðatímabil og verið nokkuð fyrir neðan miðju.