Heimir um Hjört: Sorglegt ef að þetta er eins slæmt og þetta lítur út núna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2016 20:38 Hjörtur Hermannsson í baráttunni í Aþenu í kvöld. Vísir/AFP
Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði A-landsliðs Íslands í fyrsta sinn í kvöld þegar Ísland vann 3-2 endurkomu sigur á Grikkjum í Aþenu. Fyrsti byrjunarliðsleikur Hjartar endaði þó ekki vel því hann þurfti að yfirgefa völlinn í lokin. Íslenska liðið var þá búið með skiptingarnar og spilaði því manni færri síðustu mínúturnar. Heimir Hallgrímsson, annar þjálfari íslenska landsliðsins, óttast að þetta gætu verið slæm meiðsli fyrir þennan 21 árs leikmann. „Þetta virðist vera eitthvað alvarlegt. Sennilega hefur eitthvað rifnað í festum við nárann. Það er sorglegt ef að þetta er eins slæmt og þetta lítur út núna," sagði Heimir Hallgrímsson um meiðsli Hjartar. Hjörtur hefur verið hjá PSV Eindhoven frá 2013 en var á dögunum lánaður til sænska liðsins IFK Gautaborg. „Hann stóð sig vel núna og ef að þetta verður eins slæmt og þetta lítur út fyrir að vera þá er þetta fyrst og fremst leiðinlegt fyrir hann, fyrir okkur og fyrir liðið sem var að fá hann til þess að fá að byrja að spila," sagði Heimir. Hjörtur ætlaði að nota þetta tímabil til að koma sér í gang og fá að spila en nú gæti verið bið á því reynist meiðslin vera það alvarleg. „Hann er búinn að bíða eftir því að fá að spila með alvöru klúbbum og það er leiðinlegt ef að hann missir af því," sagði Heimir. Meiðslin koma líka í veg fyrir að hann eigi möguleika á því að vinna sér sæti í íslenska EM-hópnum.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Fleiri fréttir Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Sjá meira