Sigurganga San Antonio á heimavelli heldur áfram | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. mars 2016 07:06 Kawhi Leonard átti góðan leik fyrir San Antonio í sigrinum á Clippers. vísir/getty
Sex leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. San Antonio Spurs vann sinn 33. heimaleik í röð þegar liðið lagði Los Angeles Clippers að velli, 108-87. San Antonio hefur unnið alla heimaleiki sína í vetur og nálgast óðfluga met Chicago Bulls frá tímabilinu 1995-96 yfir flesta heimasigra í röð í upphafi tímabils (37). Varamenn San Antonio voru drjúgir í nótt og skiluðu alls 51 stigi, gegn aðeins 20 hjá Clippers. Kawhi Leonard var stigahæstur í liði San Antonio með 20 stig en LaMarcus Aldrigde kom næstur með 17 stig. Chris Paul skoraði mest fyrir Clippers, eða 22 stig. Toronto Raptors, næstefsta liðið í Austurdeildinni, átti ekki í miklum vandræðum með Milwaukee Bucks á útivelli í nótt. Lokatölur 89-107, Toronto í vil. DeMar DeRozan, stigahæsti leikmaður Toronto á tímabilinu, lék ekki með í nótt en það breytti engu. Kyle Lowry fór fyrir Toronto-liðinu með 25 stigum og 11 stoðsendingum og Norman Powell skilaði 17 stigum. Paul George skoraði 25 stig fyrir Indiana Pacers sem bar sigurorð af Boston Celtics á heimavelli, 103-98. Indiana er í 7. sæti Austurdeildarinnar en liðið á góða möguleika á að komast í úrslitakeppnina þar sem 10 af síðustu 15 leikjum liðsins í deildarkeppninni eru á heimavelli. Isiah Thomas skoraði 21 stig og gaf átta stoðsendingar fyrir Boston sem er í 3. sæti Austurdeildarinnar.Úrslitin í nótt: San Antonio 108-87 LA Clippers Milwaukee 89-107 Toronto Indiana 103-98 Boston Orlando 116-110 Denver Brooklyn 131-114 Philadelphia LA Lakers 98-106 SacramentoTim Duncan heldur áfram að klífa upp listann yfir stigahæstu leikmenn NBA frá upphafi Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira