Curry fór hamförum í enn einum heimasigri Golden State | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. janúar 2016 11:08 Curry skoraði tvær körfur fyrir aftan miðju gegn Indiana. vísir/getty
Níu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Steve Kerr, þjálfari Golden State Warriors, sneri aftur á bekkinn þegar meistararnir unnu 12 stiga sigur, 122-110, á Indiana Pacers. Þetta var 38. sigur Golden State á heimavelli í röð. Steph Curry var í miklum ham í leiknum og skoraði tvær körfur með skotum fyrir aftan miðju. Curry endaði með 39 stig, 10 fráköst og 12 stoðsendingar. Draymond Green átti sömuleiðis flottan leik með 22 stig og 11 fráköst. San Antonio Spurs er óstöðvandi þessa dagana og vann sinn 13. leik í röð þegar liðið sótti Los Angeles Lakers heim í nótt. Lokatölur 95-108, San Antonio í vil. Manu Ginobili skoraði 20 stig fyrir San Antonio en allir leikmenn liðsins nema einn komust á blað í leiknum. D'Angelo Russell var stigahæstur í liði Lakers með 18 stig en Kobe Bryant skoraði aðeins fimm stig í leiknum. Hann hefur aldrei skorað jafn lítið í leik gegn San Antonio á ferlinum. Chris Paul skoraði 16 stig og gaf 13 stoðsendingar þegar Los Angeles Clippers bar sigurorð af New York Knicks, 88-116, í Madison Square Garden í nótt. DeAndre Jordan var stigahæstur í liði Clippers með 20 stig en liðið hefur unnið átta af síðustu 10 leikjum sínum og er í 4. sæti Vesturdeildarinnar.Úrslitin í nótt: Golden State 122-110 Indiana LA Lakers 95-108 San Antonio NY Knicks 88-116 LA Clippers Orlando 116-120 Charlotte Boston 110-101 Chicago Brooklyn 86-108 Utah Toronto 101-81 Miami Houston 102-98 Milwaukee Dallas 106-109 OklahomaÞað breytir engu hversu langt færið er, Curry skorar samt DeAndre Jordan finnst gaman að troða James Harden átti góðan leik gegn Milwaukee
NBA Mest lesið Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Handbolti Gjöf frá mömmu vatt rækilega upp á sig Sport Amad bjargaði stigi fyrir United Enski boltinn „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Handbolti Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Enski boltinn Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Enski boltinn Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð Enski boltinn Arne Slot: „Þetta er síðasta spurningin sem ég átti von á“ Enski boltinn Fleiri fréttir Diljá stórskotleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 86-82 | Þarf ekki alltaf að vera fallegt ef það virkar „Varnarleikur snýst eiginlega bara um að nenna“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-90 | Taplausir Grindvíkingar kjöldrógu Val „Búnir að sýna hvað við getum verið lélegir“ KR - ÍA 109-75 | KR-ingar sýndu allar sínar bestu hliðar þegar þeir burstuðu Skagamenn Íslandsmeistararnir frá því fyrir sextíu árum heiðursgestir í kvöld „Hann ætti bara að skrifa afsökunarbiblíuna“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 85-84| Njarðvík fyrstar til að leggja Grindavík af velli Ótrúleg dramatík í Garðabæ og á Sauðárkróki Landsliðsmennirnir öflugir í Evrópu Jordan gagnrýnir álagsstjórnun í NBA: Þú hefur skyldu til að láta sjá þig Skiptiborð hjá stelpunum í kvöld Var með skattinn á hælunum þegar hann fór í veðmálabraskið Bíll Shaquille O'Neal enn ófundinn Martin öflugur í góðum sigri Öllum leikjum Bónus-deildar kvenna í kvöld frestað Sjá meira