Lögðu undir sig heimavistarskóla Gunnar Leó Pálsson skrifar 15. ágúst 2015 12:00 Hér eru þeir Sigurvald Ívar Helgason, Þorgils Björgvinsson, Einar Rúnarsson, Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, Skúli Gautason, Pálmi J. Sigurhjartarson og Björgvin Ploder flottir við flaggstöngina. myndir/sniglabandið
Hljómsveitin Sniglabandið er um þessar mundir að gera nýja plötu, sem hlotið hefur nafnið Íslenskar sálarrannsóknir. Meðlimir sveitarinnar hafa undanfarna daga dvalið á Núpi í Dýrafirði þar sem þeir hafa verið við upptökur og í eins konar sálarrannsóknavinnu. „Þetta hefur gengið rosalega vel. Við vorum búnir með fjögur lög áður en við fórum vestur og náðum svo að klára önnur fjögur lög á Núpi. Þetta er það besta sem hljómsveitir geta gert þegar þarf næði og einbeitingu til að vinna og tengjast saman, menn eru ekki að skjótast hingað og þangað eins og oft vill verða í amstri dagsins í borginni,“ segir Pálmi Sigurhjartarson, píanóleikari Sniglabandsins. Gamli heimavistarskólinn á Núpi hefur því verið notaður sem hljóðver að undanförnu. „Þetta er frábær staður, við vorum með gömlu heimavistina fyrir okkur, settum magnarana í tóma sundlaugina og trommusettið í leikfimisalinn. Ég fékk að nota gamalt upright Baldwin-píanó í einu laganna, píanóið stóð einsamalt úti í horni matsalarins og gaf frá sér magnaðan hljóm sem á eftir að gefa laginu Þú bíður allavega eftir mér, eftir Megas, nýjan og í senn eldgamlan tón. Við unnum svo frá níu á morgnana til eitt á næturnar, þetta var alveg frábært,“ útskýrir Pálmi en þeir félagar voru nýkomnir í höfuðborgina þegar blaðamaður náði tali af honum.Hér eru liðsmenn Sniglabandsins djúpt hugsi í hljóðverinu sem þeir settu upp á Núpi í Dýrafirði.Platan sem sveitin vinnur nú að kemur út í byrjun októbermánaðar í tilefni af þrjátíu ára afmæli Sniglabandsins. Sveitin ætlar að halda upp á afmælið með heljarinnar tónleikum í Eldborgarsal Hörpu 3. október. „Við erum að endurútsetja íslensk alþýðulög frá ýmsum tímum. Við erum að finna sálina í vel sömdum lögum, sem eiga margt annað inni. Það er pínu tilgangurinn með plötunni,“ útskýrir Pálmi. Eitt lag af þessari væntanlegu plötu hefur heyrst í sumar en það er lagið Ég er að tala um þig eftir Jóhann G. Jóhannsson sem Björgvin Halldórsson söng upphaflega. „Við höfum nú gert það að okkar og erum mjög sáttir við útkomuna. Við erum að útsetja íslensk alþýðulög frá ýmsum tímabilum í tónlistarsögunni og hefur það verið verkefni þessa árs að vinna úr hugmyndum og velja lög, eða kannski meira að leyfa lögunum að koma til okkar, eins og þau hafa flest gert. Sum lögin hafa rúllað fram og aftur í tempóum og stílum þangað til við erum orðnir sáttir og finnum réttan tilgang með útsetningunni, að gefa góðu lagi annað líf og jafnvel lengja lífdaga þess,“ segir Pálmi. „Næsta útspil okkar verður tónlistarperla sem við vitum að mörgum þykir vænt um, Villtir strengir eftir Oddgeir Kristjánsson. Það lag var t.d. að detta út af lagalistanum af því einfaldlega að við vorum ekki komnir niður á útsetningu sem við vorum sáttir við, en í vestfirsku kyrrðinni fundum við svarið og erum mjög ánægðir með útkomuna.“ Þótt Sniglabandið hafi ekki verið að spila um hverja helgi að undanförnu þá hefur sveitin hist vikulega síðan í janúar til þess að vinna í tónlist. „Við byrjuðum fyrstu vikuna í janúar og höfum hist vikulega síðan. Þetta hefur verið mikil útsetningarvinna og hópar þurfa líka að koma þessu andlega saman,“ bætir Pálmi við. Þeir félagar hafa einnig verið með útvarpsþætti í sumar á Rás 2 en hafa oftast sent þá út utan af landi. „Við vorum með þáttinn á Ísafirði síðustu helgi og fórum svo á Núp í leiðinni í bæinn. Við sendum þáttinn út frá Sauðárkróki um helgina.“ Sniglabandið kemur einmitt fram á Gærunni á Sauðárkróki í kvöld, á Hótel Mælifelli.
Mest lesið Segir að gengið hafi verið nærri hjónabandinu, gögnum stolið og allt túlkað á versta veg Lífið Frægar í fantaformi Lífið Lára og lyfjaprinsinn opinbera kynið Lífið Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Tónlist Tilfinningar þvælast fyrir tiltektinni Lífið Ein glæsilegasta skvísa landsins komin á fast Lífið Framandi en fljótlegir smáréttir um jólin Jól Ofurpar úr tennisheiminum á Íslandi Lífið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Menning Kynbomba og reynsluboltar í Melodifestivalen Lífið Fleiri fréttir „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira