Tíminn geymir næstu skref Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. júlí 2015 06:30 Leiðtogar evruríkjanna funduðu er fjármálaráðherrar þjóðanna höfðu lokið sér af. Hér má sjá, talið frá vinstri, Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikkja, Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar Evrópuráðsins, Francois Hollande Frakklandsforseta og Charles Michel, forsætisráðherra Belgíu, ráða ráðum sínum fyrir fundinn. vísir/ap
Fjármálaráðherrar evruríkjanna funduðu í yfir tíu klukkustundir í gær til að finna lausn á skuldavanda Grikkja. Er fundi þeirra lauk tók við fundur leiðtoga ríkjanna. Lagabreytinga er þörf á gríska þinginu svo af aðstoð verði og verða þær að vera afgreiddar frá þinginu fyrir 15. júlí. Meðal þess sem lagt var fram á fundinum var fjögurra síðna plagg með stífum skilmálum evruríkjanna fyrir áframhaldandi aðstoð til handa Grikkjum. Er það mál manna að það muni reynast Grikkjum erfitt að uppfylla skilyrðin sem þar eru sett fram fyrir áframhaldandi aðstoð. Á listanum má finna hluti á borð við að einkavæða raforkuflutningskerfi landsins og gagngerar endurbætur á ellilífeyriskerfinu. Verði af nýju neyðarláni er talið að það nemi allt að 86 milljörðum evra en til að það gangi í gegn heimta lánardrottnar að Grikkir framselji yfirráð yfir fjölda ríkiseigna til þeirra. Verðmæti eignanna nemur um fimmtíu milljörðum evra. Skuldir Grikkja nema nú um 320 milljörðum evra, eða í kringum 180 prósentum af vergri landsframleiðslu. Aukin aðstoð þýðir að skuldir þjóðarinnar fara yfir 200 prósenta múrinn. Gríska ríkisstjórnin, með Alexis Tsipras forsætisráðherra í broddi fylkingar, féllst í gærkvöldi á drög að úrbótum þó að enn eigi eftir að fínpússa samninginn. Verði ekki gengið að samningnum er sá möguleiki á borðinu að Grikkir yfirgefi evrusamstarfið og taki upp drökmu á nýjan leik í fyrir fram ákveðinn tíma til að ná stjórn á vandanum. Úr herbúðum Finna hafa þær fregnir borist að þeir hyggist ekki samþykkja nýtt neyðarlán. Ólíklegt er að vægi þeirra sé slíkt að það hafi úrslitáhrif. Pirrings gætir hjá fleiri þjóðum en Finnum. Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu, lét þau orð falla við komu til Brussel að það væri tímabært að Evrópa sneri sér aftur að hlutum sem hún yrði að gera. Nefndi hann í því samhengi ástandið í Líbíu, Úkraínu og Íran. „Ég man ekki eftir svipaðri stöðu á mínum ferli,“ segir Martin Schulz, forseti Evrópuþingsins. „Þetta snýst í raun allt um ESB. Ef taka á ESB alvarlega á alþjóðavettvangi verður það að sýna að það geti tekið á eigin vandamálum.“ Hann er andvígur því að Grikkir yfirgefi sambandið, jafnvel þó að það sé í stutta stund. Er fréttir bárust af því að drög að samkomulagi væru í höfn mátti sjá megna óánægju Grikkja á samfélagsmiðlinum Twitter. Margir tístu undir myllumerkinu #TsiprasLeaveEUSummit. Vildu þeir meina að stjórnin væri að fara á svig við vilja þjóðarinnar en 61 prósent kjósenda vildi að Grikkir höfnuðu samningum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Niðurstaða spekúlanta um framhaldið virðist ávallt vera sú sama. Aðeins tíminn getur leitt í ljós næstu skref.
Grikkland Tengdar fréttir Fundi aflýst með skömmum fyrirvara Leiðtogar Evrópusambandsins hugðust ákveða framtíð Grikklands. 12. júlí 2015 09:41 Óvíst hvort grískur almenningur þoli tvö ár af óvissu Gangi Grikkir úr evrusamstarfinu geta myndast aðstæður sem líkjast fremur stríðssvæði en efnhagsvanda að mati grísks efnahags- og fjármálaráðgjafa. 11. júlí 2015 20:23 Þungi sögunnar hvílir á Þýskalandi Dagurinn í dag er talinn sá stærsti í 10 ára valdatíð Angelu Merkel og biðla þýskir miðlar til kanslarans að hún „sýni mikilleika“ og bjargi Evrópu. 12. júlí 2015 13:04 Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Fleiri fréttir Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Sjá meira
Fundi aflýst með skömmum fyrirvara Leiðtogar Evrópusambandsins hugðust ákveða framtíð Grikklands. 12. júlí 2015 09:41
Óvíst hvort grískur almenningur þoli tvö ár af óvissu Gangi Grikkir úr evrusamstarfinu geta myndast aðstæður sem líkjast fremur stríðssvæði en efnhagsvanda að mati grísks efnahags- og fjármálaráðgjafa. 11. júlí 2015 20:23
Þungi sögunnar hvílir á Þýskalandi Dagurinn í dag er talinn sá stærsti í 10 ára valdatíð Angelu Merkel og biðla þýskir miðlar til kanslarans að hún „sýni mikilleika“ og bjargi Evrópu. 12. júlí 2015 13:04
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán