Aníta hefur byrjað fjögur ár í röð á því að setja Íslandsmet Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2015 08:00 Aníta Hinriksdóttir Vísir/Valli
Aníta Hinriksdóttir er enn bara 18 ára gömul (á nítjánda ári, fædd 1996) þrátt fyrir að hún hafi verið að setja Íslandsmet í fullorðinsflokki undanfarin fjögur ár. Það þýðir jafnframt að í hvert skipti sem hún bætir Íslandsmet fullorðinna þá falla aldursflokkametin að sjálfsögðu í leiðinni. Þegar Aníta setti Íslandsmetið í 800 metra hlaupinu á Meistaramóti Íslands í Kaplakrika um helgina náði hún tíunda margfalda meti sínu í greininni, það er met sem nær yfir þrjá aldursflokka eða fleiri. Metið sem var einnig Evrópumet unglinga var þrefalt Íslandsmet, Íslandsmet fullorðinna, Íslandsmet hjá 18 og 19 ára stúlkum og Íslandsmet hjá 20 til 22 ára stúlkum. „Það var mjög sterkt að fá þessa bætingu núna því við erum að fara á tvö mjög stór mót og það er gott að hún finni og viti að æfingarnar séu að ganga vel. Það eykur sjálfstraustið að geta sýnt það í verki á brautinni,“ segir Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu. Aníta hefur nú byrjað fjögur ár í röð á því að setja nýtt Íslandsmet fullorðinna í sinni bestu grein í janúar eða febrúar en fyrir uppkomu Anítu var metið búið að standa óhaggað í 34 ár, 10 mánuði og 25 daga. „Hún hefur skapað sér nafn meðal þeirra bestu síðustu tvö árin. Hún sló í gegn 2013 og hefur verið í kringum fimmtugasta sæti á heimslista fullorðinna síðustu tvö ár. Það er mjög gott sem unglingur,“ segir Gunnar Páll. Aníta hefur nú bætt innanhússmetið um næstum því átta sekúndur í fimm stökkum en hún bætti metið tvisvar sinnum 2013. Hún setti fyrsta metið í janúar 2012 (2:05,96 mínútur), en svo hafa fylgt met í janúar 2013 (2:04,79 mínútur), febrúar 2013 (2:03,27 mínútur), janúar 2014 (2:01,81 mínútur) og loks í febrúar 2015 (2:01,77 mínútur).„Þetta hefur bara gengið eins og við vonuðumst eftir. Þetta er síðasta árið hennar í unglingaflokki og hún kemur til með að keppa á Evrópumeistaramóti unglinga í sumar. Það er síðasta unglingamótið og um leið og hún er að fara upp úr unglingaflokki þá er hún orðin vel gjaldgeng í keppni þeirra bestu í fullorðinsflokki líka,“ segir Gunnar og nú þarf Aníta að sækja meira í keppnisreynslu erlendis enda samkeppnin ekki mikil hér heima. „Þessar bestu í heiminum eru velflestar með mjög mikla reynslu. Sú sem er efst á heimslistanum núna er sem dæmi komin yfir þrítugt og því orðin geysilega reynd. Aníta mætir henni einmitt í Birmingham eftir tíu daga. Hún þarf að safna í reynslubankann og við verðum að gera okkur grein fyrir því að það gengur ekki alltaf allt upp í hverju hlaupi. Þú öðlast ekki keppnisreynslu nema að keppa. Hún er því að reyna að komast meira og meira í hlaup þar sem hún lendir í toppkeppni til að geta upplifað allt sem því fylgir,“ segir Gunnar Páll. Það mátti sjá mun á hlaupastíl Anítu um síðustu helgi og hún er búin að bæta hann talsvert frá því í fyrra. „Hún hefur aukið styrkinn hjá sér því við jukum áherslurnar á styrktaræfingarnar í vetur. Hún er því orðin sterkari og heldur hlaupastöðunni mun betur heldur en í fyrra. Það er framför og við höfum líka verið að vinna talsvert mikið í hraðanum. Hún hefur aukið bæði hraða og styrk í vetur,“ segir Gunnar Páll og er mjög sáttur með hvernig Aníta er að koma út úr auknum styrktaræfingum og auknum hraðaæfingum. Þrjú af þessum fimm Íslandsmetum Anítu hafa verið fjórföld (Konur, 20 til 22 ára, 18 til 19 ára og 16 til 17 ára) en tvö þau síðustu þreföld. Að auki hefur hún sett fimm fjórföld Íslandsmet í 800 metra hlaupi utanhúss. Alls eru Íslandsmet hennar í 800 metra hlaupi kvenna orðin 42 samkvæmt afrekaskrá FRÍ. „Það er ekki hægt að ætlast til þess að hún setji met í hverju hlaupi en hún er enn þá í það mikilli framför að ég veit að hún er í formi til þess að bæta þetta met inni í vetur,“ segir Gunnar Páll að lokum.
Frjálsar íþróttir Tengdar fréttir Hafdís nærri dottin: Heppin að ég lamdi ekki Hrafnhild Vön því að æfa hlaup í fótboltahöllum á Akureyri. 9. febrúar 2015 06:00 Aníta bætti líka Evrópumetið Tíminn hennar í 800 m hlaupi í dag sá sjötti besti á heimsvísu í fullorðinsflokki á árinu. 8. febrúar 2015 16:15 Aníta: Draumurinn að fá boð á Demantamót Aníta Hinriksdóttir virðist í góðu formi í upphafi nýs árs en hún bætti eigið Íslandsmet í 800 m hlaupi innanhúss á Meistaramóti Íslands í Kaplakrika. Aníta bætti einnig eigið Evrópumet í flokki 19 ára og yngri. 9. febrúar 2015 07:00 Aníta með glæsilegt Íslandsmet Hlaupadrottningin Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslandsmet í 800 metra hlaupi kvenna á Meistaramóti Íslands innanhús í Kaplakrika í dag. 8. febrúar 2015 13:57 Anítu mætir þeirri fljótustu í ár Hlaupadrottningunni ungu boðið á sterkt innanhússmót í Birmingham. 10. febrúar 2015 08:30 Lúxusvandamál á fundi stjórnar FRÍ á fimmtudaginn Konur áttu tíu af tólf bestu afrekum Meistaramóts Íslands í Kaplakrika um helgina og það var bara Kolbeinn Höður Gunnarsson sem rauf einokun stelpnanna á toppsætum listans. 10. febrúar 2015 07:00 Mest lesið KR - Stjarnan | Ekkert annað en sigur dugir KR-ingum Körfubolti Leik lokið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Handbolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkur nældu í þrjú stig Fótbolti Leik lokið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Körfubolti PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Fótbolti Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Handbolti Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Golf „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Einkunnir Íslands: Fyrirliðinn best í kvöld Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Hamar/Þór einum sigri frá Bónus eftir sigurkörfu á lokasekúndu „Það sem þær fengu var svolítið það sem við gáfum þeim“ Leik lokið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Leik lokið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit KR - Stjarnan | Ekkert annað en sigur dugir KR-ingum Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkur nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli Besta sætið: HSÍ stendur uppi sem sigurvegari „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Sjá meira
Hafdís nærri dottin: Heppin að ég lamdi ekki Hrafnhild Vön því að æfa hlaup í fótboltahöllum á Akureyri. 9. febrúar 2015 06:00
Aníta bætti líka Evrópumetið Tíminn hennar í 800 m hlaupi í dag sá sjötti besti á heimsvísu í fullorðinsflokki á árinu. 8. febrúar 2015 16:15
Aníta: Draumurinn að fá boð á Demantamót Aníta Hinriksdóttir virðist í góðu formi í upphafi nýs árs en hún bætti eigið Íslandsmet í 800 m hlaupi innanhúss á Meistaramóti Íslands í Kaplakrika. Aníta bætti einnig eigið Evrópumet í flokki 19 ára og yngri. 9. febrúar 2015 07:00
Aníta með glæsilegt Íslandsmet Hlaupadrottningin Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslandsmet í 800 metra hlaupi kvenna á Meistaramóti Íslands innanhús í Kaplakrika í dag. 8. febrúar 2015 13:57
Anítu mætir þeirri fljótustu í ár Hlaupadrottningunni ungu boðið á sterkt innanhússmót í Birmingham. 10. febrúar 2015 08:30
Lúxusvandamál á fundi stjórnar FRÍ á fimmtudaginn Konur áttu tíu af tólf bestu afrekum Meistaramóts Íslands í Kaplakrika um helgina og það var bara Kolbeinn Höður Gunnarsson sem rauf einokun stelpnanna á toppsætum listans. 10. febrúar 2015 07:00