Dramatískur sigur Clippers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. desember 2015 07:54
Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt en San Antonio minnkaði forystu Golden State á toppi vesturdeildarinnar með sínum þriðja sigri í röð er liðið lagði Utah örugglega, 118-81. San Antonio er með 21 sigur en Golden State 24 í 25 leikjum. Síðarnefnda liðið var þó í fríi í nótt, sem og Oklahoma City sem er í þriðja sætinu með sextán sigra. LA Clippers, sem er í fjórða sætinu, vann Detroit, 105-103, en staðan var jöfn þegar, 112-112, rúmar tólf sekúndur voru til leiksloka. Jamal Crawford setti þá niður þriggja stiga körfu og Clippers sendi Detroit á vítalínuna. Reggie Jackson nýtti fyrra vítið sitt en það síðara geigaði. Andre Drummond, liðsfélagi hans, náði hins vegar frákastinu og fékk tvö tækifæri til að koma boltanum í körfuna en bæði klikkuðu. Jackson fékk einnig skottilraun í blálok leiksins en allt kom fyrir ekki. Blake Griffin skoraði 34 stig fyrir Clippers og JJ Ridick bætti við 24. Jackson endaði með 34 stig, ellefu fráköst og sjö stoðsendingar fyrir Detroit. Í Austurdeildinni er Cleveland efst með fimmtán sigra en liðið spilaði ekki í nótt. Chicago vann sinn þriðja sigur í röð, í þetta sinn gegn Philadelphia, 115-96, sem er með verstan árangur allra liða í deildinni - einn sigur í 26 leikjum.Úrslit næturinnar: Indiana - Toronto 106-90 Brooklyn - Orlando 82-105 Detroit - LA Clippers 103-105 Atlanta - Miami 88-100 Chicago - Philadelphia 115-96 Memphis - Washington 112-95 Dallas - Phoenix 104-94 San Antonio - Utah 118-81 Denver - Houston 114-108 Portland - New Orleans 105-101
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira