Innlent

Brutust út fagnaðarlæti í dómssal: „Þungu fargi af okkur létt“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ásta Kristín Andrésdótir og heilbrigðisstarfsfólk fagnaði í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hér fallast Ásta Kristín og Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum, í faðma.
Ásta Kristín Andrésdótir og heilbrigðisstarfsfólk fagnaði í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hér fallast Ásta Kristín og Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum, í faðma. Vísir/Stefán

Ólafur G. Skúlason, formaður félags hjúkrunarfræðinga, segir svo sannarlega ástæða til hamingjuóska eftir að Ásta Kristín Andrésdóttir hjúkrunarfræðingur var sýknuð af ákæru fyrir manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Fjölmenni var í dómssal þegar dómur var upp kveðinn og féllu gleðitár. Greinilegt var að léttirinn var mikill.

„Það brutust út fagnaðarlæti. Fólk var mjög ánægt með þessa niðurstöðu,“ segir Ólafur í samtali við Vísi. „Þessi dómur er náttúrulega fyrst og fremst ánægjulegur fyrir þennan hjúkrunarfræðing sem var fyrir dómi. Það sem við viljum að komi út úr þessu er að það verði fundin ákveðin leið hvernig eigi að taka á svona alvarlegum atvikum í heilbrigðisþjónustu.“

Kalla eftir rannsóknarnefnd

Var hjúkrunarfræðingnum gefið að sök að hafa láðst að tæma loft úr kraga (belg) barkaraufarrennu þegar hún tók sjúklinginn úr öndunarvél og setti talventil á barkaraufarrennuna. Afleiðingar þess urðu þær að sjúklingurinn gat aðeins andað að sér lofti en ekki frá sér. Varð fall í súrefnismettuninni og blóðþrýstingi sjúklingsins og lést hann skömmu síðar. 

„Reglurnar og lögin eru hreinlega ekki nógu skýr til að segja til um í hvaða farveg þessi mál eigi að fara. Við köllum eftir því að það verði skipuð einhvers konar rannsóknarnefnd á svona alvarlegum atvikum í heilbrigðisþjónustu.“

Ólafur segir það almenna skoðun fólks í heilbrigðisgeiranum að ekki eigi að ákæra í málum sem þessum.

Fólki er mjög umhgað um Ástu

„Ef við eigum að læra af mistökum verður fólk að þora að segja frá þeim. Eigi þeir á hættu að verða ákærðir fyrir það er ég ansi hræddur um að tíðni atvikaskráninga myndi lækka. Með öryggi sjúklinga að leiðarljósi held ég að það sé algjörlega rétta leiðin að málin séu rannsökuð á þann hátt að fólk læri af mistökunum og komi í veg fyrir að þau gerist aftur.“

Formaðurinn segir málið hafa legið afar þungt á hjúkrunarfræðingum.

„Fólk hefur haft miklar áhyggjur og fólki er mjög umhugað um Ástu. Þungu fargi er af okkur létt,“ segir Ólafur. Framundan sé lestur dómsins og svo fundir með hjúkrunarfræðingum á Landspítalanum bæði í dag og á morgun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×