Skaðbrenndist út af Apple úri Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. nóvember 2015 15:28 Apple úr. vísir/getty „
Ég var á leiðinni á klósettið þegar ég fann nístandi sársauka í vinstri handleggnum og á sama fann ég lykt af brennandi holdi,“ segir Jörgen Mouritzen í samtali við Ekstra Bladet um það þegar hann brenndist illa í október síðastliðnum. Mouritzen telur að um sé að kenna Apple úri sem hann bar. Hann segir að sársaukinn og lyktin hafi komið frá ól úrsins sem var brennandi heit. „Þegar ég reif það af mér með hægri höndinni brenndist ég einnig á fingrum, svo heit var ólin.“ Mouritzen segist sannfærður að Apple úrinu sé um að kenna. Hann hafi ekki verið nálægt neinu heitu, eða snert neitt heitt, þegar hann fann til sársaukans. Hann hefur nú beðið í meira en mánuð eftir skýringu frá Apple á því hvað gerðist. Það eina sem hann hefur heyrt er að Apple sé enn að skoða málið. „Ég hef ekki heyrt neitt um það hvers vegna þetta gerðist né nokkuð um nýtt úr,“ segir Mouritzen. Hann segist ekki vera að hefna sín á Apple. „Ég er mikill aðdáandi Apple og held að þarna sé bara um einstakt tilfelli að ræða af gallaðri vöru. Ég er hins vegar undrandi á því hvað Apple gerir lítið til að hjálpa viðskiptavinum sínum.“ Sjá má myndir af brunasárum Mouritzen á vef Ekstra Bladet.
Tækni Mest lesið Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Erlent Donald Trump forseti á nýjan leik Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Íslenskir Trumpistar fylgjast spenntir með skammt frá Trump sjálfum Innlent Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku Erlent Andstæðingar þungunarrofs unnu í Flórída Erlent Repúblikanar ná meirihluta í öldungadeildinni Erlent Mikill fögnuður hjá Trump-liðum Erlent Gætum þurft að bíða í nokkra daga ef ekkert óvænt gerist Erlent Keyrði utan vegar og hafnaði á öðrum bíl sem valt Innlent Fleiri fréttir Þjóðarleiðtogar kasta kveðjum á Trump Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku Andstæðingar þungunarrofs unnu í Flórída Donald Trump forseti á nýjan leik Mikill fögnuður hjá Trump-liðum Repúblikanar ná meirihluta í öldungadeildinni Gætum þurft að bíða í nokkra daga ef ekkert óvænt gerist Netanjahú rekur varnarmálaráðherrann Spurning hvort hræðsluáróður eða jákvæðni nái betur til kjósenda Baráttan um Bandaríkin: Hvað gerist eiginlega í nótt? Mikill viðbúnaður vegna ásakana um svindl í lykilsýslu Arizona Dæmdur í fangelsi fyrir kóranbrennur Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu Útsendarar GRU sagðir hafa sent eldsprengjur með flugvélum Sigurvegarar í keppni Musks ekki valdir af handahófi Pennsylvanía nauðsynleg til að tryggja sigur Réttað yfir átta vegna afhöfðunar kennara í París Rauð veðurviðvörun og 80 flugferðum aflýst eða frestað „Já, maður! Að sjálfsögðu vinnur hann þetta!“ Evrópusamstarf verður að Evrópuvandamáli Forseti Moldóvu hélt velli þrátt fyrir ásakanir um rússnesk afskipti Á lokametrunum í kosningabaráttu Repúblikanar önugir yfir óvæntu atriði Harris í SNL Grýttu drullu í Spánarkonung Skyggnst inn í hugarheim stuðningsmanna Trump Óvænt forskot Harris í Iowa sætir tíðindum Hefja bólusetningar við lömunarveiki á ný Sendir tíu þúsund manna herlið til Valensía Ostaþjófnaður skekur heim matgæðinga: „Hver vill svona mikinn ost?“ Sjá meira