Innlent

Vill olíuvinnslu út af borðinu

Snærós Sindradóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna tekur harðari afstöðu gegn olíuvinnslu en forveri hennar.
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna tekur harðari afstöðu gegn olíuvinnslu en forveri hennar. Vísir

„Það breytir engu þó að einhverjir geti grætt á loftslagsbreytingum, grætt á því að nýta auðlindir Norðurskautsins, grætt á nýjum siglingaleiðum. Við eigum ekki að græða á því sem veldur eymd annarra, sem skaðar náttúruna.“ Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins í gær.

Hún hélt áfram: „Við höfum raunverulega möguleika á því að verða kolefnishlutlaust land. Við getum sagt: Olíuvinnsla er ekki valkostur miðað við stöðuna og við ætlum að hverfa frá henni.“ Þetta er þvert á stefnu forvara hennar í embætti formanns, Steingríms J. Sigfússonar, en sem atvinnuvegaráðherra gaf hann út fyrstu leyfi til olíuleitar á Drekasvæðinu.

Í aðdraganda landsfundar hefur fjöldi flokksmanna skorað á starfsmann flokksins, Daníel Hauk Arnarsson, að gefa kost á sér til embættis varaformanns. Viss óánægja hefur ríkt innan flokksins með störf Björns Vals Gíslasonar varaformanns og hann þótt fjarlægur höfuðborgardeild flokksins. Daníel hefur ekki orðið við áskoruninni. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×