Grindvíkingar í felum fram að móti? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. september 2015 10:30 Það er ekki hægt að sjá á heimasíðu KKÍ hvað Jón Axel Guðmundsson hefur gert í þremur fyrstu leikjum tímabilsins. Vísir/Ernir
Grindvíkingar hafa þegar spilað þrjá leiki í Fyrirtækjabikar karla í körfubolta en engar upplýsingar eru samt til á heimasíðu KKÍ um frammistöðu leikmanna liðsins í þessum þremur leikjum. Samkvæmt reglugerð Körfuknattleikssambands Íslands þá er það skylda félaganna að taka tölfræði á leikjum sinna liða í Fyrirtækjabikar karla og kvenna en sú regla hefur ekki dugað hingað til í leikjum Grindavíkurliðsins. Grindvík hefur spilað tvo heimaleiki og einn útileik til þessa í keppninni og tölfræðin hefur ekki skilað sér á KKÍ-síðuna úr neinum þeirra. Það lítur út fyrir að Grindvíkingar ætli hreinlega að vera í felum fram að Íslandsmótinu. Grindvíkingar bera sjálfir ábyrgð á því að taka tölfræðina í heimaleikjum sínum en það er ekki hægt að kenna þeim um að tölfræðin var heldur ekki tekin þegar þeir mættu út í KR. Þegar félög eru farin að sleppa leik eftir leik þá er þetta orðin spurning um hvort að sektirnar séu alltof lágar. Það er hægt að sjá (eða ekki) heildartölfræði Grindavíkurliðsins í fyrstu þremur leikjum liðsins í Fyrirtækjabikarnum með því að smella hér. Leikmenn Grindavíkurliðsins hafa aftur á móti ekki klikkað inn á vellinum því þeir hafa unnið alla þessa þrjá leiki með sannfærandi hætti. Grindavík vann 23 stiga sigur á Val (90-67), 26 stiga sigur á KR (88-62) og 10 stiga sigur á ÍR (85-75). Lokaleikur Grindvíkinga í riðlinum er á móti KFÍ á Ísafirði eftir rúma viku en Grindvíkingar eru þegar búnir að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar. Grindavíkurkonur spila sinn fyrsta leik í kvöld þegar Breiðablik kemur í heimsókn í Röstina í Fyrirtækjabikar kvenna. Nú er að sjá hvort tölfræðin skili sér hjá stelpunum eða hvort þær séu líka í "felum" eins og karlarnir.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Leik lokið: KR - KA 5-3 | Átta marka veisla í Vesturbæ Íslenski boltinn „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira