Hvernig getur Fanndís ennþá "bara" verið með 14 mörk | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2015 17:00 Fanndís Friðriksdóttir. Vísir/Ernir
Breiðablik er áfram með fjögurra marka forskot á toppi Pepsi-deildar kvenna en markadrottningin Fanndís Friðriksdóttir náði þó ekki að auka við forskot sitt á listanum yfir markahæstu leikmenn deildarinnar. Breiðablik vann 3-0 sigur á Fylki á Kópavogsvelli í gær og fékk Fanndís Friðriksdóttir fjölda færa til þess að bæta við þau fjórtán mörk sem hún var búin að skora í tólf fyrstu umferðum Pepsi-deildarinnar. Fanndís Friðriksdóttir hefur því áfram tveggja marka forskot á Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur sem er farin út í nám til Bandaríkjanna og spilar ekki fleiri leiki í sumar. Harpa Þorsteinsdóttir úr Stjörnunni og Sandra María Jessen úr Þór/KA skoruðu báðar tvö mörk í þessari umferð og eru núna þremur mörkum á eftir Fanndísi. Fanndís hefði farið langt með að tryggja sér gullskóinn ef að hún hefði nýtt allra bestu færin í leiknum í gær en hún klúðraði meðal annars vítaspyrnu í leiknum. Fanndís hefur nú ekki skorað í þremur leikjum í röð og eftir að hafa horft á öll færin sem fóru forgörðum gegn Fylki þá gætu einhverjir velt því fyrir sér hvort að slokknað væri á heitasta framherja Pepsi-deildarinnar. Fanndís sofnaði örugglega seint í gærkvöldi en hún hjálpaði til við að landa sigrinum með því að leggja upp þriðja mark Blika og eiga stóran þátt í undirbúningi annars marksins. Strákarnir á Sporttv klipptu saman myndbrot með öllum færunum sem Fanndís fékk í leiknum á móti Fylki í gær. Myndbandið er aðgengilegt með því að smella hér.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira