Íslenski boltinn

Sjáðu hjólhestinn hjá Tokic | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ejub Purisevic hefur verið ánægður með nýja manninn.
Ejub Purisevic hefur verið ánægður með nýja manninn. vísir/daníel
Ejub Purisevic stefnir hraðbyri með Ólsara upp í Pepsi-deildina í annað sinn, en þar spilaði liðið síðast í fyrsta skipti fyrir tveimur árum.

Ólsarar eru í öðru sæti 1. deildarinnar með 32 stig, fimm stigum á undan Þór þegar fjórtán umferðir eru búnar af deildinni.

Ólafsvíkingar unnu 2-0 útisigur á Selfossi í gær þar sem nýr framherji liðsins, Hrvoje Tokic, skoraði magnað mark í uppbótartíma fyrri hálfleiks með hjólhestaspyrnu.

Alfreð Már Hjaltalín, sem hefur spilað frábærlega fyrir Ólsara í sumar, bætti við öðru marki í seinni hálfleik.

Jón Karl Jónsson birtir myndband af mörkunum báðum á Facebook-síðu sinni en þau má sjá hér að neðan.

Mörkin úr leik í 1.deild karla Ungmennafélag Selfoss og Víkingur frá Ólafsvík....

Posted by Jón Karl Jónsson on Wednesday, July 29, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×