Íslenski boltinn

Nýtt gervigras í Egilshöll

Úr leik í Egilshöll.
Úr leik í Egilshöll. vísir/andri
Knattspyrnufólk mætir í nýja aðstöðu í Egilshöll í vetur því það er loksins verið að skipta um gervigras í húsinu.

Grasið á vellinum var komið til ára sinna og nýja grasið verður því mikil breyting. Húsið opnaði árið 2002.

Gamla grasið er að sama skapi til sölu og geta áhugasamir haft samband við eiganda Egilshallarinnar og pantað eins stóran hluta og þá vantar.

Framkvæmdirnar hófust fyrir helgi og þegar vetrarboltinn hefst á nýjan leik bíður nýtt og betra gervigras í húsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×