Það er fátt betra en heimagerður hamborgari með öllu því sem hugurinn girnist.
Þegar sólin skín er upplagt að dusta rykið af grillinu og grilla ljúffengan mat sem kemur okkur öllum í sumarskap. Þessi beikon- og piparostafyllti hamborgari er algjörlega ómótstæðilegur, ég segi það og skrifa.
Beikon- og piparostafylltur hamborgari
Grillaðir hamborgarar
600 g nautahakk
1 msk olía
1 rauðlaukur
1 1/2 dl smátt skorið stökkt beikon
2 msk dijon sinnep
2 msk söxuð steinselja
1 egg
brauðrasp
2 dl rifinn piparostur
salt og pipar
hvítmygluostur
kál
tómatur
majónes
Aðferð:
- Hitið olíu á pönnu, skerið rauðlaukinn í sneiðar og steikið upp úr olíunni í nokkrar mínútur eða þar til hann er mjúkur í gegn.
- Blandið öllum hráefnum saman í skál fyrir utan hvítmygluostinn. Brauðrasp eða hveiti bindur deigið betur saman en notið eins mikið og ykkur finnst þið þurfa af því. Best er að nota hendurnar til verksins!
- Mótið fjóra til fimm hamborgara. Ég keypti mér ágæta hamborgarapressu frá Weber í Hagkaup um daginn og mér finnst hún alveg frábær. Kostar tæplega 2000 kr. Kjarakaup!
- Grillið hamborgarana í þrjár mínútur á lokuðu grilli, snúið þeim við og bætið hvítmygluosti að eigin vali ofan á og grillið áfram í 4 – 6 mínútur.
- Það er gott að setja hamborgarabrauðin á grillið rétt í lokin.
- Berið borgarann fram með majónesi, dijon sinnepi, káli, tómat og gjarnan enn meiri rauðlauk. Ég var einnig með sætar kartöflufranskar. Ég skar niður nokkrar sætar kartöflur í lengjur, velti þeim upp úr olíu og kryddaði til með salti, pipar og paprikukryddi. Bakaði við 180°C í 35 – 40 mínútur.
Njótið vel.
xxx
Eva