Golden State og Chicago með 2-0 forystu | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. apríl 2015 07:15 Klay Thompson fagnar í nótt. Vísir/Getty
Engin óvænt úrslit urðu í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Besta lið deildakeppninnar, Golden State Warriors, er komið í 2-0 forystu gegn New Orleans Pelicans eftir sigur í leik liðanna í nótt, 97-87. Leikurinn var jafn framan af en Golden State fór á sprett í fjórða leikhluta með Klay Thompson fremstan í flokki. Hann skoraði fjórtán stig af sínum 26 stigum þá og tólf af síðustu sextán stigum Golden State í leiknum. Steph Curry var hins vegar stigalaus í fjórða leikhluta en skilaði engu að síður 22 stigum í leiknum. Hjá New Orleans var Anthony Davis stigahæstur með 26 stig en hann tók tíu fráköst þar að auki. Chicago Bulls hefur 2-0 forystu í sinni rimmu gegn Milwaukee Bucks. Chicago vann á heimavelli í nótt, 91-82. Jimmy Butler heldur áfram að spila vel, rétt eins og hann gerði í fyrsta leiknum, og skoraði 31 stig í nótt sem er persónulegt met í úrslitakeppninni. Derrick Rose bætti við fimmtán stigum sem komu öll í síðari hálfleik. Khris Middleton fór fyrir Milwaukee með 22 stigum. Báðar rimmur skipta nú um vettvang og fer þriðji leikurinn í báðum fram á fimmtudagskvöldið.
NBA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Sjá meira