Stjarnan í efstu deild í fyrsta sinn 14. apríl 2015 21:50 Stjörnuliðið sem tryggði félaginu sæti í efstu deild kvenna í fyrsta sinn. Vísir/ÓskarÓ
Stjarnan tryggði sér í kvöld sæti í Domino's-deild kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins er liðið hafði betur gegn Njarðvík, 57-54. Þetta var oddaleikur liðanna í úrslitarimmu um eitt laust sæti í deildinni. Njarðvík varð deildarmeistari en liðið tapaði aðeins einum leik í allan vetur. Njarðvík vann fyrsta leik liðanna á heimavelli en Stjarnan svaraði fyrir sig í Garðabænum á laugadag. Liðin mættust því í hreinum úrslitaleik í kvöld en það var fyrst og fremst frábær kafli í upphafi fjórða leikhluta sem gerði út um leikinn en Stjörnukonur náðu þá mest þrettán stiga forystu, 54-41. Stjarnan tekur sæti Breiðabliks í efstu deild kvenna en Njarðvíkingar sitja eftir með sárt ennið, þrátt fyrir að hafa orðið deildarmeistari í vetur með talsverðum yfirburðum. Hittni liðsins fyrir utan þriggja stiga línuna brást á úrslitastundu og það reyndist liðinu dýrkeypt. Njarðvíkurkonur hittu aðeins úr 4 af 28 þriggja stiga skotum sínum í kvöld. Sævaldur Bjarnason er þjálfari Stjörnuliðsins og hann kom liðinu upp á sínu fyrsta ári. Stjarnan hafði verið nálægt því að komast upp undanfarin ár og meðal annars tvisvar sinnum tapað í úrslitaeinvíginu.Njarðvík-Stjarnan 54-57 (10-13, 14-14, 14-11, 16-19)Njarðvík: Karen Dögg Vilhjálmsdóttir 12/6 fráköst, Erna Hákonardóttir 9, Guðbjörg Ósk Einarsdóttir 9, Andrea Björt Ólafsdóttir 7/12 fráköst/5 varin skot, Björk Gunnarsdótir 7/8 fráköst/5 stoðsendingar, Soffía Rún Skúladóttir 5/8 fráköst, Elínora Guðlaug Einarsdóttir 3, María Jónsdóttir 2.Stjarnan: Bára Fanney Hálfdanardóttir 12/8 fráköst, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 12/7 stoðsendingar, Sara Diljá Sigurðardóttir 9/10 fráköst, Helga Þorvaldsdóttir 8, Eva María Emilsdóttir 7/11 fráköst, Kristín Fjóla Reynisdóttir 5/5 fráköst, Heiðrún Ösp Hauksdóttir 2/7 fráköst/5 stoðsendingar, Guðrún Edda Sveinbjörnsdóttir 2.Vísir/ÓskarÓVísir/ÓskarÓ
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Leik lokið: KR - KA 5-3 | Átta marka veisla í Vesturbæ Íslenski boltinn „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Leik lokið: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga Íslenski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira