Komust að samkomulagi í Minsk Samúel Karl Ólason skrifar 12. febrúar 2015 09:32 Vladimir Putin, forseti Rússlands, Angela Merkel, kanslari Þýskalands, Francois Hollande, forseti Frakklands og Petro Poroshenko, forseti Úkraínu. Vísir/EPA
Vladimir Putin sagði á blaðamannafundi á tíunda tímanum í morgun að deiluaðilar í Úkraínu hafi samið um vopnahlé, sem hefst á miðnætti næstkomandi Sunnudag. Putin, Petro Poroshenko, forseti Úkraínu, Angela Merkel, kanslari Þýskalands og Francois Hollande, forseti Frakklands funduðu í sautján klukkustundir í Minsk í Hvíta-Rússlandi. „Okkur hefur tekist að semja um meginatriðin,“ er haft eftir Putin á vef BBC. Francois Hollande sagði þó að ekki væri búið að semja um öll deiluatriðin. Þá sagði Putin að yfirvöld í Kænugarði vildu enn ekki semja beint við aðskilnaðarsinna. Búið er að semja um að þungavopn, eins og stórskotalið verði flutt frá víglínunni og að stofnað verði vopnlaust svæði á milli stríðandi fylkinga. Þá sagði Putin að stjórnarskrá Úkraínu yrði breytt með tilliti til réttinda rússneskumælandi íbúa Austur-Úkraínu. Samkvæmt AP fréttaveitunni segja þó bæði stjórnarherinn og aðskilnaðarsinnar í Austur-Úkraínu að barist hafi verið á svæðinu í morgun. Yanukovych invented it. Didn't end well for him RT @andersostlund: Anxiety? Putin breaks pencil at #Minsk talks. pic.twitter.com/00OpswPmzq— Myroslava Petsa (@myroslavapetsa) February 12, 2015 Skömmu áður en þessi niðurstaða var tilkynnt höfðu fregnir borist af því að viðræðurnar gengu ekki vel. Poroshenko hafði sagt fjölmiðlum að skilmálar Rússlands væru óásættanlegir. Hollande, Merkel og Poroshenko munu nú biðja Evrópusambandið um að styðja samkomulagið. Á vef Sky News kemur fram að bæði stjórnvöld í Kænugarði og aðskilnaðarsinnar séu óánægðir með samkomulagið.Blaðamannafundur Putin
Úkraína Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira