Cristiano sá sigursælasti í sögunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2015 09:30 Cristiano Ronaldo í metleiknum í gær. Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo varð í gær sigursælasti leikmaðurinn í sögu útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta þegar hann hjálpaði Real Madrid að vinna 2-0 útisigur á Schalke í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Cristiano Ronaldo skoraði fyrra markið sjálfur og lagði síðan það seinna upp fyrir brasilíska bakvörðinn Marcelo. Það er hægt að sjá mörkin hér fyrir neðan. Þetta var 28. sigurleikur Cristiano Ronaldo á ferlinum í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar en hann bætti í gær met markvarðanna Edwin van der Sar og Victor Valdes. Edwin van der Sar vann sína 27 leiki með Ajax, Juventus og Manchester United. Victor Valdes vann sína 27 leiki með Barcelona en hann er nú varamarkvörður hjá Manchester United. Cristiano Ronaldo vann tólf leiki í útsláttarkeppni með Manchester United en þá er ekki talinn með úrslitaleikurinn árið 2008 þar sem United-liðið vann Chelsea í vítakeppni. Sigurinn í gær var síðan sá sextándi með liði Real Madrid en Cristiano Ronaldo og félagar hafa komist að lágmarki í undanúrslitin síðustu fjögur tímabil. Cristiano Ronaldo hefur farið þrisvar sinnum alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar með liðum sínum og tvisvar fagnað sigri.Cristiano Ronaldo í MeistaradeildinniMeð Manchester United 2003-04: 16 liða úrslit (0 sigrar) - Porto sló þá út 2004-05: 16 liða úrslit (0 sigrar) - AC Milan sló þá út 2005-06: Sátu eftir í riðlinum 2006-07: Undanúrslit (4 sigrar) - AC Milan sló þá út 2007-08: Evrópumeistari (4 sigrar) - sigur á Chelsea í vítakeppni 2008-09: Tap í úrslitaleik (4 sigrar) - tap fyrir Barcelona í úrslitaleikMeð Real Madrid 2009-10: 16 liða úrslit (0 sigrar) - Lyon sló þá út 2010-11: Undanúrslit (3 sigrar) - Barcelona sló þá út 2011-12: Undanúrslit (3 sigrar) - Bayern München sló þá út 2012-13: Undanúrslit (3 sigrar) - Dortmund sló þá út 2013-14: Evrópumeistari (6 sigrar) - sigur á Atletico í úrslitaleik 2014-15: Í gangi (1 sigur) - mæta Schalke í 16 liða úrslitum1-0 fyrir Real Madrid. 2-0 fyrir Real Madrid.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira