Skoðun

Víða er gott að vera

Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifar
Færsla opinberra starfa til landsbyggðarinnar er liður í að sporna við núverandi byggðaþróun. En á undanförnum árum hefur opinberum störfum fjölgað á höfuðborgarsvæðinu en fækkað á landsbyggðinni. Það er ekki hagkvæmt fyrir þjóðarbúið að of stór hluti þjóðarinnar búi á sama horninu, því til að nýta öll landsins gæði, til sjávar og sveita, verður fólk að búa sem víðast. Stórauknu fiskeldi í Arnarfirði verður til dæmis ekki sinnt frá Reykjavík.

Hluti starfa flyst norður

Starfsemi Fiskistofu er nú á sjö stöðum vítt og breytt um landið og starfa 74 hjá stofnuninni. Sjávarútvegsráðherra hefur kynnt áform um að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu til Akureyrar en þau eru í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Þá munu 25-30 störf flytjast norður.

Sterkari stofnun

Breytingar eru oft sársaukafullar en engu að síður geta þær verið hagkvæmar til lengri tíma litið. Flutningur höfuðstöðva Fiskistofu til Akureyrar er gott dæmi um hagkvæma aðgerð. Rekstrarkostnaður er t.a.m. minni á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu, og munar þar mest um húsnæðiskostnað. Einnig er starfsmannavelta mun minni á landsbyggðinni. Það kostar mikla fjármuni að þjálfa nýjan starfsmann og því mun aukinn stöðugleiki í starfsmannahaldi styrkja stofnunina.

Styður við mannauðinn

Til skemmri tíma litið má gera ráð fyrir því að faglegur grunnur stofnunarinnar veikist. En það er ekki ástæða til að ætla annað en að fagþekking byggist upp á ný þar sem að eyfirska vinnusóknarsvæðið hefur upp á þá fagþekkingu að bjóða sem Fiskistofa þarfnast. Háskólinn á Akureyri er leiðandi á sviði sjávarútvegsfræða auk þess sem skólinn býður upp á nám á öðrum fagsviðum sem Fiskistofa sækir mannauð í. Á Akureyri er einnig starfrækt Sjávarútvegsmiðstöð sem leggur stund á rannsóknir tengdar sjávarútvegi. Því má segja að fræðaumhverfið á Akureyri muni styðja verulega við mannauð stofnunarinnar.

Nokkur skref

Áætlað er að flutningur Fiskistofu muni taka nokkurn tíma og þann tíma þarf að nota vel til að vinna að yfirfærslu þekkingar. Gert er ráð fyrir að höfuðstöðvar Fiskistofu verði komnar til Akureyrar fyrir 1. júlí 2015. Vandað verður til verka og reynt að koma til móts við starfsmenn eins og kostur er til að halda þeim mannauði sem skapast hefur innan stofnunarinnar. Gert er ráð fyrir að flutningi ljúki að öllu leyti fyrir 1. janúar 2017.




Skoðun

Sjá meira


×