Jón Arnór er brenndur síðan haustið 2006 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2014 07:00 Jón Arnór Stefánsson í gær. Vísir/Daníel
Jón Arnór Stefánsson verður ekki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM sem hefst með heimaleik við Bretland á sunnudaginn. Jón Arnór er samningslaus og tekur ekki áhættuna á að meiðast í þessum landsleikjum og missa af möguleikanum á því að finna sér nýjan samning. Jón Arnór er brenndur því hann meiddist illa á ökkla í landsleik haustið 2006. „Ég lenti í slæmum meiðslum með landsliðinu sem klúðraði þessu Valencia-ævintýri fyrir mér,“ sagði Jón en hann tekur þessa ákvörðun í samráði við stjórn KKÍ. „Það hafði samt ekki áhrif á mig fjárhagslega því ég var það ungur. Það er bara annað dæmi í dag þegar ég er 31 árs og að verða 32 ára. Ungu pungarnir eru að berjast við mann um stöður og því þarf ég að vera klókur,“ segir Jón Arnór Óttast hann hvað fólk úti í bæ segi við þessu? „Ég gerði það en það er ekki hægt að álasa mér fyrir að hugsa um mitt lifibrauð og mína fjölskyldu. Ég held að allir myndu taka þessa ákvörðun þó að þeir láti mig heyra það núna,“ sagði Jón Arnór og hann gæti enn dottið inn í liðið ef hann fær nýjan samning. „Ég er búinn að æfa með landsliðinu og ætlaði allan tímann að vera búinn að klára þetta og vera með. Það gæti enn þá gerst ef ég sem í kvöld eða á morgun. Það er samt ólíklegt,“ sagði Jón Arnór og hann fær stuðning frá liðsfélögum sínum og þjálfara. „Auðvitað er slæmt að missa Jón og Jakob er ekki heldur búinn að vera með okkur í sumar. Þetta eru tveir bestu skorarar okkar. En um leið og þetta kom í ljós þá þurfti maður bara að gleyma því að Jón væri til,“ sagði Pavel Ermolinskij í léttum tón. Jón Arnór nefnir Pavel sem og Loga Gunnarsson sem tvo leikmenn sem þurfa að skila meiru. „Þetta er mikill missir enda okkar aðalmaður. Þetta er mjög erfið aðstaða sem hann er í en við skiljum hann allir og vitum bara að það er ákveðin ábyrgð sem færist á aðra núna,“ sagði Logi. „Þetta er óheppilegt en alveg skiljanlegt. Ég hefði gert það sama og hann í sömu stöðu. Það styðja hann allir í hópnum, það væri auðvitað mjög gott að hafa hann en við erum ekki eina liðið sem er í svona stöðu,“ sagði Craig Pedersen, þjálfari íslenska liðsins. Jón Arnór tekur það líka fram að hann hefur ekki spilað sinn síðasta leik. „Ég er ekki hættur í landsliðinu, það er pottþétt. Ég ætla ekki að gefa eftir mína stöðu og kem bara og berst fyrir henni aftur næsta sumar,“ segir Jón Arnór léttur. Hvað með ef strákarnir koma liðinu inn á EM án hans? „Hvernig væri það? Ef þeir gera það án mín þá get ég kannski bara hætt þessu. Það væri frábært og ég hef fulla trú á því að strákarnir geti unnið Bretland,“ sagði Jón Arnór. Hann lofaði því líka að kíkja inn í klefa fyrir leik. „Það verður samt fáránlegt að vera bara uppi í stúku að horfa á,“ sagði Jón að lokum.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Tengdar fréttir Jón Arnór verður ekki með Íslandi í undankeppninni Mikið áfall fyrir landsliðið sem gerði sér vonir um sæti á EM 2015. 7. ágúst 2014 16:15 Jón Arnór: Ég á bara tvö til þrjú ár eftir og þurfti að taka þessa ákvörðun Jón Arnór Stefánsson verður ekki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM þar sem liðið mætir Bosníu og Bretlandi í baráttunni um sæti á EM. Jón Arnór er samningslaus og tekur ekki áhættuna að að meiðast í þessum landsleikjum og missa af möguleikanum á því að finna sér nýjan samning. 7. ágúst 2014 18:21 Jón Arnór: Rétt ákvörðun þó að hún sé mjög erfið Jón Arnór Stefánsson verður ekki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM sem hefst með heimaleik við Bretland um næstu helgi og Valtýr Björn Valtýsson ræddi við kappann í kvöldfréttum Stöðvar 2 og fékk að vita af hverju besti leikmaður landsliðsins getur ekki spilað þessa leiki. 7. ágúst 2014 18:45 Haukur Helgi: Ég er að fara til hans Peters í LF Basket Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson er búinn að ganga frá sínum málum en hann mun spila með sænska úrvalsdeildarliðinu LF Basket í vetur. Peter Öqvist, fyrrum þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tók við liði LF Basket í sumar og hóaði í einn öflugasta leikmann íslenska landsliðsins. 7. ágúst 2014 17:43 Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira
Jón Arnór verður ekki með Íslandi í undankeppninni Mikið áfall fyrir landsliðið sem gerði sér vonir um sæti á EM 2015. 7. ágúst 2014 16:15
Jón Arnór: Ég á bara tvö til þrjú ár eftir og þurfti að taka þessa ákvörðun Jón Arnór Stefánsson verður ekki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM þar sem liðið mætir Bosníu og Bretlandi í baráttunni um sæti á EM. Jón Arnór er samningslaus og tekur ekki áhættuna að að meiðast í þessum landsleikjum og missa af möguleikanum á því að finna sér nýjan samning. 7. ágúst 2014 18:21
Jón Arnór: Rétt ákvörðun þó að hún sé mjög erfið Jón Arnór Stefánsson verður ekki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM sem hefst með heimaleik við Bretland um næstu helgi og Valtýr Björn Valtýsson ræddi við kappann í kvöldfréttum Stöðvar 2 og fékk að vita af hverju besti leikmaður landsliðsins getur ekki spilað þessa leiki. 7. ágúst 2014 18:45
Haukur Helgi: Ég er að fara til hans Peters í LF Basket Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson er búinn að ganga frá sínum málum en hann mun spila með sænska úrvalsdeildarliðinu LF Basket í vetur. Peter Öqvist, fyrrum þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tók við liði LF Basket í sumar og hóaði í einn öflugasta leikmann íslenska landsliðsins. 7. ágúst 2014 17:43