Viðskipti innlent

Félag stofnað um olíuhöfn Drekans

Kristján Már Unnarsson skrifar
Mjóeyrarhöfn þjónar iðnaðarlóðinni á Reyðarfirði. Þar er álver Alcoa Fjarðaáls.
Mjóeyrarhöfn þjónar iðnaðarlóðinni á Reyðarfirði. Þar er álver Alcoa Fjarðaáls. Vísir/Pjetur.

„Við höfum þegar hafið vinnu við stofnun félags með heimamönnum til að halda utan um starfsemina,“ segir Haukur Óskarsson, stjórnarmaður í Eykon Energy og framkvæmdastjóri iðnaðar hjá Mannviti, í yfirlýsingu vegna þeirrar ákörðunar að velja iðnaðarhöfnina á Reyðarfirði sem þjónustuhöfn Drekasvæðis. Skýrt var frá málinu í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. 



Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað verða starfssvæði landþjónustu Eykons Energy vegna fyrirhugaðrar olíuleitar og –vinnslu á Drekasvæðinu, samkvæmt ákvörðun stjórnenda fyrirtækisins, að því er fram kemur í fréttatilkynningu Eykons.  Í faglegri úttekt sem gerð var á staðarvali fyrir þjónustumiðstöð kom fram að þessi tvö sveitarfélög stóðu í sameiningu best að vígi bæði hvað aðstöðu varðar og samfélagslega innviði, segir ennfremur í tilkynningunni.

Egilsstaðaflugvöllur.Vísir/Vilhelm.

„Svæðið er ákaflega vel staðsett og vel í stakk búið til að takast á við krefjandi þjónustu á borð við þá starfsemi sem felst í olíuleit og vinnslu á fjarlægum hafsvæðum. Við hjá Eykon sjáum fyrir okkur farsælt samstarf við sveitarfélögin tvö næstu árin og lítum björtum augum til framtíðar,” segir Haukur. 



Eykon Energy ehf. á í samstarfi við kínverska orkufyrirtækið CNOOC og norska olíufélagið Petoro og fengu fyrirtækin leyfi til olíuleitar og –vinnslu á Drekasvæðinu 22. janúar síðastliðinn. Jafnframt er Eykon móðurfélag Kolvetna ehf., sem eiga aðild að öðru sérleyfi, ásamt Ithaca og Petoro, sem var úthlutað þann 4. janúar 2013.


Tengdar fréttir

Reyðarfjörður valinn sem olíubær Íslands

Eykon Energy hefur valið Reyðarfjörð sem þjónustumiðstöð fyrir bæði olíuleit og olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segir þetta skapa gríðarleg tækifæri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×