Napoli ítalskur bikarmeistari Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. maí 2014 22:16 Leikmenn Napoli fagna marki Lorenzos Insigne í kvöld. Vísir/Getty
Napoli varð í kvöld bikarmeistari á Ítalíu eftir 3-1 sigur á Fiorentina á Ólympíuleikvanginum í Róm. Þetta var fimmti bikarmeistaratitill Napoli og um leið fyrsti titilinn sem liðið vinnur undir stjórn Spánverjans Rafa Benitez, sem tók við liðinu fyrir tímabilið. Napoli hóf leikinn af miklum krafti og Lorenzo Insigne kom liðinu yfir strax á 11. mínútu eftir sendingu frá Marek Hamsik. Insigne var síðan aftur á ferðinni sex mínútum seinna þegar hann skoraði eftir undirbúning Gonzalos Higuain. Perúmaðurinn Juan Vargas minnkaði muninn á 28. mínútu og þannig stóðu leikar allt fram í uppbótartíma þegar Dries Mertens skoraði þriðja mark Napoli og gulltryggði sigur liðsins. Napoli lék síðustu tíu mínútur leiksins einum færri eftir að Gökhan Inler var vikið af leikvelli. Leikurinn hófst rúmum hálftíma síðar en áætlað var vegna óeirða stuðningsmanna liðanna fyrir leikinn. Flugeldum og reyksprengjum var kastað inn á Ólympíuleikvanginn, en samkvæmt frétt á vef BBC voru stuðningsmenn Napoli þar að verki. Óstaðfestar heimildir herma að þeir hafi viljað að leiknum yrði frestað vegna meiðsla sem þrír stuðningsmenn liðsins urðu fyrir í skotárás fyrr í dag.
Ítalski boltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira