Sagði upp í beinni útsendingu Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 6. mars 2014 15:21 Mynd/Skjáskot
Fréttalesari sjónvarpsstöðvarinnar Russia Today, sem flytur fregnir frá sjónarhóli Rússa á ensku um allan heim í gegnum gervihnött, sagði upp í beinni útsendingu í gær. Stöðin er kostuð af Rússneska ríkinu og hefur gefið sig út fyrir að flytja fréttir með öðrum áherslum en hinar vestrænu fréttastöðvar. Mörgum hefur stöðin þótt ganga erinda Rússa í umfjöllun sinni um Úkraínu og innrás Rússa á Krímskaga. Sumir starfsmenn stöðvarinnar virðast vera sammála þeim áskökunum en fréttaþulan Liz Wahl, sem stjórnaði fréttaþáttum frá útíbúi RT í Bandaríkjunum ákvað að segja upp í beinni útsendingunni á stöðinni í gær. Wahl sagði að sér ofbyði fréttaflutningur stöðvarinnar af ástandinu á Krímskaga og hvernig stöðin reyndi í sífellu að hvítþvo aðgerðir Pútíns forseta. Þess vegna sæi hún sér ekki annað fært en að segja upp. Yfirmenn Russia Today segja í yfirlýsingu að þessi opinbera sýning Wahl sé ekkert annað en hún að kynna sjálfa sig með mikilli sýningu. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem fréttakona á stöðinni gagnrýnir hana en fyrr í vikunni fordæmdi fréttakonan Abby Martin það sem hún kallaði innrás Rússa á Krímskaga. Viðbrögð stjórnenda stöðvarinnar í það skiptið voru þau að segja að Martin væri ekki inn í málunum og því hefði verið ákveðið að senda hana á Krímskaga til að hún geti kynnt sér málin betur.
Úkraína Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira