Aron Kristjáns: Höfðu samband við mig strax eftir EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2014 19:49 Aron Kristjánsson nýr þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins KIF Kolding Kaupmannahöfn. Vísir/Daníel „
Þetta er skemmtilegt en krefjandi verkefni. Þetta er lið í toppbaráttunni en þeir eru í töluverðum vandræðum í augnablikinu. Það hafa hrannast upp meiðsli og veikindi hjá þeim undanfarið og það verður því mikil áskorun fyrir mig að fara þangað og klára tímabilið með þeim. Mig langaði að taka áskoruninni og reyna að hjálpa þeim því þetta er spennandi lið," sagði Aron Kristjánsson nýr þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins KIF Kolding Kaupmannahöfn. „Þeir höfðu samband við mig strax eftir EM og svo fór ég og kíkti á þá í vikunni og vann þetta síðan yfir helgina. Þetta kláraðist bara í dag," sagði Aron sem fer út aftur á morgun. Hann horfði á danska liðið standa vel í þýska stórliðinu Kiel í Meistaradeildinni um helgina en Kiel vann þá tveggja marka sigur eftir hörkuleik. „Þeir voru í vandræðum á móti Kiel því margar skytturnar hjá þeim voru lemstraðar, einhverjir tóku ekki þátt og aðrir voru á hálfum hraða. Það var flott hjá þeim að standa vel í þeim. Þeir eru með mjög sterka vörn og góða markvörslu," sagði Aron sem hefur fengið fleiri fyrirspurnir. „Það hefur áður verið þannig að hlutir hafa ekki passað inn og því hefur maður hent þeim frá sér. Það er fínt að þetta passi inn. HSÍ-menn voru tilbúnir til að sleppa mér og ég er ánægður með það. Það hefur líka verið mjög gott samstarf okkar á milli," segir Aron.
Íslenski handboltinn Handbolti Tengdar fréttir Aron tekur við KIF Kolding Aron Kristjánsson, karlalandsliðsþjálfari Íslands í handbolta, mun þjálfa danska úrvalsdeildarliðið KIF Kolding Kaupmannahöfn út þetta tímabil en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ. 10. febrúar 2014 18:47 Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira
Aron tekur við KIF Kolding Aron Kristjánsson, karlalandsliðsþjálfari Íslands í handbolta, mun þjálfa danska úrvalsdeildarliðið KIF Kolding Kaupmannahöfn út þetta tímabil en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ. 10. febrúar 2014 18:47