Formúla 1

Ferrari kynnti nýja bílinn sinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Alonso og Raikkonen við nýja bílinn.
Alonso og Raikkonen við nýja bílinn. Mynd/Ferrari
Fernando Alonso og Kimi Raikkonen voru að sjálfsögðu rauðklæddir þegar ítalski risinn Ferrari kynnti F14 T bílinn sem kapparnir munu notast við á tímabilinu sem senn fer í hönd.

Bíllinn sem sá sextándi sem Ferrari smíðar til keppni í Formúlu 1 en hann hefur verið í hönnun undanfarin tvö ár. Kosning um nafn á bílinn fór fram á heimasíðu félagsins.

Nýi bíllinn er með 1,6 lítra túrbó V6 vél og með nýtt nef í takt við breytingar á reglum keppninnar. McLaren kynnti einmitt nýjan bíl sinn í gær með öðruvísi útfærslu á nefinu. Nýju reglurnar miða að því að auka öryggi ökuþóra.

Illa hefur gengið hjá Ferrari undanfarin ár. Alonso hefur mátt sætta sig við að hafna þrívegis í öðru sæti og einu sinni í fjórða sæti á árum sínum fjórum hjá Ferrari. Hann tók sæti Raikkonen árið 2010 en Finninn er nú mættur aftur í herbúðir ítalska félagsins.

Hér má sjá myndband sem Ferrari sendi frá sér í tilefni dagsins. Það er skyggnst á bak við tjöldin í hönnunarferli nýja ökutækisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×