Fótbolti

Dagný valin í lið ársins í bandaríska háskólaboltanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir, númer 7, fagnar marki með liðsfélögum sínum.
Dagný Brynjarsdóttir, númer 7, fagnar marki með liðsfélögum sínum. Mynd/AP
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir sem leikur með Florida State háskólanum var valin í lið ársins í bandaríska háskólaboltanum en lið hennar fór alla leið í úrslitaleikinn um titilinn.

Dagný er ein af tveimur leikmönnum  Florida State háskólans í úrvalsliðinu en hin er Kassey Kallman.

Dagný var í byrjunarliðinu í 25 leikjum á tímabilinu og var efst hjá liðinu í stigum (33, mörk + stoðsendingar), mörkum (14), skotum (74), skotum á mark (37) og sigurmörkum en hún tryggði Florida State sigur í sjö leikjum.

Dagný hefur leikið undanfarin ár með Val en ætlar að spila með Selfossi í Pepsi-deild kvenna á komandi sumri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×