Lyngby gerði þá 2-2 jafntefli á heimavelli á móti AaB eftir að hafa komist yfir snemma leiks.
Eftir leikinn þá er Lyngby í næst neðsta sæti deildarinnar með einn sigur og tíu stig í fimmtán leikjum. AaB er tveimur sætum og sex stigum ofar.
Sævar Atli kom sínu liði yfir strax á áttundu mínútu og Lyngby var yfir í 47 mínútur.
Leikmenn AaB snéru hins vegar við leiknum með tveimur mörkum á fjórum mínútum. Það fyrra skoraði John Iredale en það seinna gerði Melker Widell.
Lyngby menn gáfust ekki upp og gátu þakkað íslenska landsliðsframherjanum fyrir það að stigið kom í hús.
Sævar Atli fiskaði vítaspyrnu á lokamínútunum og úr henni skoraði Frederik Gytkjær jöfnunarmarkið. Sævar fiskaði líka í leiðinni einn leikmann AaB af velli með rautt spjald.
Þetta var annað mark Sævars Atla á tímabilinu en hann skoraði einnig í 1-1 jafntefli við Randers í byrjun október.