Þarf vélmennið aftur að fara í viðgerð? Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. desember 2013 06:30 Alexander Petersson.
Óvissa er um þátttöku Alexanders Petersson á EM í janúar. Þrálát axlarmeiðsli eru að plaga Alexander og mun það væntanlega liggja fyrir í næstu viku hvort hann treysti sér til að spila. Sömu axlarmeiðsli urðu þess valdandi að hann missti af HM í janúar. Aðstæður nú eru mjög svipaðar og þær voru fyrir um ári. Alexander er að spila fyrir félag sitt, Rhein-Neckar Löwen, og að spila vel. Í desember í fyrra átti hann öflugan leik og tryggði sínu liði sigur skömmu áður en hann dró sig út úr hópnum. Hann er nýbúinn að eiga stórleik gegn Kiel og tryggja Löwen sigur gegn meisturunum. Það er aftur á móti eitt að spila vel í einstaka leik en annað að spila jafnvel átta leiki á tveimur vikum með landsliðinu. Þessi meiðsli sem Alexander er að glíma við hafa plagað hann lengi. Hann tók þátt á EM árið 2012 en varð að hætta þar sem hann var ekki í lagi. Á HM árið 2011 var hann einnig langt frá því að vera heill heilsu en píndi sig áfram líkt og oft áður. Fyrir síðasta mót tók skynsemin völdin hjá honum. „Hingað til hef ég hugsað til skemmri tíma og oft tekið þátt í stórmótum og barist við meiðsli á sama tíma. Þetta er mjög erfið ákvörðun en ég tel að ég muni koma sterkari til baka. Jafnvel vélmenni þurfa að fara í viðgerð,“ segir Alexander við Fréttablaðið er hann dró sig út úr hópnum fyrir ári.
EM 2014 karla Handbolti Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira