Skoðun

Kastaðu ekki atkvæði þínu á glæ - Kjóstu öfluga málsvara fyrir landsbyggðina

Magnús Hávarðsson skrifar
Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi fólks á landsbyggðinni og án ríkisfjárframlaga eða styrkja, að bjóða fram löglegan framboðslista í Norðvesturkjördæmi. Upphaflegt markmið var að bjóða fram í öllum landsbyggðarkjördæmunum þremur. Það tókst ekki í þessari atrennu því örlítið vantaði upp á í Norðausturkjördæmi en talsvert meira í Suðurkjördæmi. Aðalatriðið er að nú hefur skotið rótum almenningsafl á landsbyggðinni sem mun vinna markvisst að jafnréttis- og jafnræðisbaráttu íbúa á landsbyggðinni um ókomna framtíð vonandi. Mikilvægt er að ýtt verði duglega undir þetta nýja afl með stuðningi í komandi kosningum og þannig flýtt fyrir að það verði marktækt í umræðunni um byggðamál.



Rödd almennings á landsbyggðinni

Mikilvægt er að rödd almennings á landsbyggðinni heyrist hátt og skýrt á Alþingi Íslendinga. Frambjóðendur Landsbyggðarflokksins bjóða sig fram til að vera öflugur málsvari þessa hóps og hafna því að fulltrúar lítilla, en öflugra sérhagsmunahópa tali í nafni fólksins á landsbyggðinni. Flokkurinn setur málefni landsbyggðarinnar efst í forgangsröðun allra málaflokka og krefst jafnræðis til handa landsbyggðarbúum hvað varðar grunnþjónustu og þar með jafnréttis til búsetu.



Landsbyggðarflokkurinn telur mikilvægt að jafnræði ríkji ekki aðeins þegar vægi atkvæða er annars vegar, heldur þurfi jafnræði þá einnig að ríkja í öllum málefnum er lúta að grunnþjónustuþáttum eins og heilbrigðis- og menntamálum, samgöngumálum ofl.

Loforðin, fínu orðin og litlar efndir

Þess má geta að frambjóðendur Landsbyggðarflokksins koma allir af landsbyggðinni, eru búsettir þar og þekkja af eigin reynslu búsetuskilyrði, atvinnu-, menningar- og mannlíf og hafa því fundið á eigin skinni hvernig landsbyggðin hefur setið á hakanum í ýmsum ákvarðanatökum stjórnvalda á undanförnum árum og áratugum. Loforðin og fínu orðin eru til staðar nú fyrir þessar kosningar sem endranær, en oft verður lítið um efndir eins og við sem byggjum landsbyggðina þekkjum svo vel.

Velmegun má ekki byggjast á niðurlægingu og hnignun

Landsbyggðarflokkurinn leggur áherslu á jafnræði þegar brugðist er við forsendubresti í þjóðfélaginu - sömu lögmál eiga að gilda hvar sem forsendubrestur á sér stað. Leiðrétting á skuldum heimilanna á ekki að leiða til ójafnvægis milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Landsbyggðarflokkurinn hafnar því að velmegun á einu eða fáum svæðum byggist á hnignun og niðurlægingu annarra svæða.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×