Fékk þau skilaboð að hann mætti ekki spila fótbolta framar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. desember 2013 14:15 Mynd/Samsett „
Alveg frá því ég man eftir mér sagðist ég ætla að verða fótboltakarl þegar ég var spurður hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór,“ segir Bjarki Már Ólafsson sem nýlega þurfti að leggja knattspyrnuskóna á hilluna fyrir aldur fram. Seltirningurinn metnaðarfulli setti sér snemma markmið að vinna fyrir sér við þá iðju sem honum þótti skemmtilegust, að leika knattspyrnu. Hægt hefði verið að gefast upp á þeim áformum margsinnis á leiðinni en Bjarki hélt sig við markmið sín alveg sama á hverju gekk.„Samkeppnin á milli okkar bræðra hefur alltaf verið svo mikil. Bæði í íþróttum og öðru,“ segir Bjarki Már sem vel fram á táningsár þótti ekki með þeim efnilegustu í flokki sínum. Hann segir samkeppnina við bróður sinn hafa hjálpað sér mikið í fótboltanum þótt erfitt hafi verið að sætta sig við ýmislegt á leiðinni. Á tímabili var hann í B-liði Gróttu á meðan bróðir hans, árinu yngri, spilaði með A-liðinu. „Hann var bæði stærri og sterkari en ég og hafði þá eiginleika fram yfir mig. Ég var seinþroska, tók ekki út kynþroska fyrr en í 10. bekk á meðan hann gerði það í 7. bekk,“ segir Bjarki Már sem aldrei lét deigan síga. Hann segist hafa verið meðvitaður um að þroskinn myndi koma og það eina sem hann gæti gert væri að bæta færni sína í fótbolta. Annað kæmi síðar.Bjarki Már fagnar bronsverðlaunum á Norway Cup sumarið 2010.Mynd/Grottusport.is„Ég þurfti að æfa óhemju mikið, æfa aukalega og þess háttar,“ segir Bjarki Már. Hann segist frá unga aldri hafa tamið sér að setja sér markmið og aldrei verið feiminn við að deila þeim með öðrum. Ýmist var hann heima hjá sér og sparkaði í vegg eða úti á Gróttuvelli. Sigurður Helgason var þjálfari hans í 4. flokki sem kom Bjarka Má vel. Sigurður þjálfaði líka 3. flokk og 2. flokk á þeim tíma. „Ég var svo oft uppi á grasi að ég fékk stundum að æfa með 2. flokki þegar vantaði mann í spil eða annað. Siggi gerði rosalega mikið fyrir mig. Við náðum mjög vel saman þótt það hafi ekki verið tilfellið með alla,“ segir Bjarki Már. Miðvörðurinn tók út þroska sinn og getan var svo sannarlega til staðar. Honum var boðið utan til æfinga hjá enska félaginu Reading sumarið 2011 þegar hann var 17 ára. „Ég var þar í tíu daga og þeir voru rosalega ánægðir með mig,“ segir Bjarki Már. Það hafi verið mikil hvatning fyrir sig að vera boðið út enda hafi það verið eitt af markmiðunum. Þá var hann valinn í æfingahóp 19 ára landsliðsins í kjölfarið.Bjarki Már í búningi Reading.Grottasport.isBjarki Már meiddist illa snemma árs 2012 og var mikið frá á árinu. Árið sem senn er á enda var hins vegar hans besta. Hann vann sig inn í meistaraflokk Gróttu sem hann æfði með ásamt því að vera í aðalhlutverki hjá 2. flokki Gróttu. Í haust var hann valinn besti leikmaður 2. flokks en um leið efnilegasti leikmaður meistaraflokks félagsins. Skömmu síðar dundi áfallið yfir. „Ég hef alltaf verið í reglulegu eftirliti hjá hjartalækni,“ segir Bjarki sem fæddist með tvíblaðka hjartalokur í stað þríblaðka. Það hafi hins vegar aldrei háð honum og svör læknisins þar til í haust verið á þá leið að hann þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur. Hann reiknaði ekki með því að nein breyting hefði orðið á því þegar læknirinn boðaði sig í skoðun ásamt foreldrum sínum. „Það var gríðarlegt sjokk. Ég stóð upp og gekk beint út,“ segir Bjarki Már um viðbrögð sín þegar hann fékk að heyra tíðindin. Álagið á hjartað og leki í hjartalokunum hefði aukist mikið. Ástandshorfurnar væru ekki góðar. Hann yrði að hætta knattspyrnuiðkun. Bjarki hafði tekið fótboltadótið með sér til læknisins enda átti hann að mæta á æfingu.Bjarki Már í leik með Gróttu.Mynd/Eyjólfur„Ég keyrði beint út á fótboltavöll þar sem ég hef í gegnum tíðina leitað skjóls,“ segir Bjarki Már sem hitti á þjálfara sinn Ólaf Brynjólfsson. Þá hafi hann fyrst áttað sig á alvarleika málsins og brotnað niður. „Það er ekki oft sem það gerist en ég brotnaði niður í faðminum á honum. Þá skildi ég að markmiðin mín væru á leiðinni út um gluggann,“ segir Bjarki Már sem þó var með á æfingunni. Sinni síðustu. „Ég var búinn að leggja svo hart að mér í mörg ár og náð að afreka mikið. Ég var orðinn bjartsýnn á að ná markmiðunum,“ segir Bjarki Már sem spilaði í fyrsta skipti með meistaraflokki Gróttu í sumar. Auk atvinnumannsdraumsins átti hann sér þann draum að spila fyrir hönd karlalandsliðs Íslands á Laugardalsvelli. Raunar er með ólíkindum í hversu gott form Bjarki Már var kominn síðastliðið sumar. Hann skoraði hæstu einkunn í þrekprófum (e. Cooper Test) sem samkvæmt hjartalækninum var ótrúlegt í ljósi þess hve mikill lekinn í hjartalokunum var.Bjarki Már í baráttunni.Mynd/Eyjólfur„Lekinn var það mikill að hjartað var að vinna á 30 prósent aukaálagi. Það þarf að pumpa þeim mun meira hjá mér en öðrum,“ segir Bjarki Már. Í raun megi þakka forminu því að hann hafi getað haldist svo lengi í fótboltanum. „Það þekkist ekki að vera í svona formi með þennan hjartasjúkdóm. Formið gaf mér þann tíma sem ég þó gat verið með í þessu.“ Þegar draumar mölbrotna er auðvelt að gera hið sama. Brotna niður og bölva óréttlæti heimsins. Bjarki Már var fljótur að finna sér ný markmið. Strax eftir fyrrnefnda æfingu hafi Ólafur og Jens Sævarsson, þjálfari 2. flokks, rætt við sig. „Óli vildi fá mig beint inn í þjálfarateymið í meistaraflokki og Jenni inn í 2. flokkinn,“ segir Bjarki Már. Nú tveimur mánuðum síðar eru markmiðin skýr. Þau eru í raun þau sömu og hann hafði sem leikmaður nema nú sem þjálfari.Bjarki Már með verðlaun sín á lokahófi Gróttu. Með honum á myndinni er Guðmundur Marteinn Hannesson, fyrirliði liðsins.Mynd/Eyjólfur„Ég er búinn að sætta mig við þetta og stefni nú á að verða eins góður þjálfari og mögulegt er,“ segir Bjarki Már. Hann kýs að horfa á hið jákvæða fremur en hið neikvæða. „Flestir byrja að plana þjálfaraferilinn upp úr þrítugu. Ég er nítján ára og er því kominn með forskot,“ segir Seltirningurinn. Hann lýkur stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands í vor og hyggur á nám í íþróttafræði á Englandi næsta haust. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrum þjálfari kvennalandsliðsins og nú þjálfari karlaliðs ÍBV, er Bjarka Má innan handar. Bjarki ritaði Sigurði bréf þar sem hann sagði honum sína sögu. Sigurður birti bréfið á heimasíðu sinni öðrum til hvatningar. Erfitt er að verða ekki snertur af hugarfari táningsins metnaðarfulla. „Maður verður að líta sem björtustum augum fram í tímann og vinna úr málunum eins og þeir birtast manni.“
Íslenski boltinn Mest lesið Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu Íslenski boltinn Arsenal - Everton | Erfið hindrun í átt að titlinum Enski boltinn Tveir látnir eftir skotárás nærri Players meistaramótinu Golf Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Íslenski boltinn Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram Handbolti Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Enski boltinn Aberg með vallarmet og meiddur McIlroy bjargaði sér Golf Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Formúla 1 Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Formúla 1 Chelsea - Newcastle | Dýrmæt stig í boði Enski boltinn Fleiri fréttir Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Sjá meira