Íslenski boltinn

Sonurinn tekur við af föður sínum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Samsett
Atli Eðvaldsson hefur látið af störfum sem þjálfari Reynis í Sandgerði. Liðið hafnaði í 8. sæti í 2. deild karla í sumar.

Sigurður Jóhannsson, varaformaður félagsins, segir við 433.is að samkomulag hafi verið gert við Atla að hann hætti.

Við starfi Atla tekur sonur hans Egill sem lék með Leikni í Reykjavík síðastliðið sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×