Formúla 1

Vettel vann fimmta kappaksturinn í röð - með 90 stiga forskot

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sebastian Vettel og Niki Lauda.
Sebastian Vettel og Niki Lauda. Mynd/AP
Sebastian Vettel hjá Red Bull náði ekki að tryggja sér heimsmeistaratitil ökumanna í Japans-kappakstrinum í formúlu eitt í nótt en það vantar ekki mikið upp á. Vettel vann sinn fimmta kappakstur í röð á Suzuka-brautinni og er nú með 90 stiga forskot á Fernando Alonso þegar aðeins fjórar keppnir og 100 stig eru eftir í pottinum.

Fernando Alonso endaði fjórði í nótt en ef að hann hefði ekki náð stigum þá væri Vettel orðinn heimsmeistari fjórða árið í röð. Vettel tryggir sér væntanlega titilinn í næsta kappakstri sem er á Indlandi.

Red Bull vann tvöfaldan sigur því Mark Webber, sem var á ráspál, varð annar og í þriðja sætinu varð síðan Romain Grosjean hjá Lotus-Renault. Grosjean ræsti fjórði en komst fljótlega í fyrsta sætið. Vettel datt hinsvegar niður í þriðja sætið í ræsingunni en hann varð annar á ráspál á eftir Mark Webber.

Sebastian Vettel slapp vel þegar Lewis Hamilton keyrði fyrir hann í upphafi kappakstursins en nuddið sprengdi dekk hjá Hamilton sem varð á endanum til þess að Bretinn lauk ekki keppni.

Leikáætlun Red Bull gekk upp og Sebastian Vettel var komst fram úr Romain Grosjean eftir 32 hringi og Webber fór síðan fram úr Lotus-manninum á 53. hring. Webber var það lengi að komast fram úr Grosjean að hann náði aldrei að ógna liðsfélaga sínum sem keyrði örugglega fyrstur í mark.

Úrslitin í kappakstrinum á Suzuka í Japan:

1. Sebastian Vettel, Red Bull-Renault      1:26:49.301     25 stig

2. Mark Webberm Red Bull-Renault      +7.129     18 stig

3. Romain Grosjeanm Lotus-Renault      +9.910     15 stig

4. Fernando Alonsom Ferrari      +45.605     12 stig

5. Kimi Räikkönenm Lotus-Renault      +47.325     10 stig

6. Nico Hülkenbergm Sauber-Ferrari      +51.615     8 stig

7. Esteban Gutiérrezm Sauber-Ferrari      +1:11.630     6 stig

8. Nico Rosbergm Mercedes      +1:12.023     4 stig

9. Jenson Buttonm McLaren-Mercedes      +1:20.821     2 stig

10. Felipe Massam Ferrari      +1:29.263     1 stig

Staðan í keppni ökumanna:

1. Sebastian Vettel 297 stig

2. Fernando Alonso 207

3. Kimi Räikkönen 177

4. Lewis Hamilton 161

5. Mark Webber 148

6. Nico Rosberg 126

7. Felipe Massa 90

8. Romain Grosjean 87

9. Jenson Button 60




Fleiri fréttir

Sjá meira


×