Fótbolti

Fyrsti leikmaðurinn fæddur 1997 til að spila í Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Youri Tielemans.
Youri Tielemans. Mynd/NordicPhotos/Getty
Youri Tielemans 16 ára leikmaður belgíska félagsins Anderlecht er í byrjunarliðinu í leiknum á móti gríska liðinu Olympiakos í kvöld og verður þar með fyrsti leikmaðurinn sem er fæddur 1997 til þess að spila í Meistaradeildinni.

Youri Tielemans er fæddur 7. maí 1997 og er á sínu fyrsta ári með aðalliði Anderlecht. Hann hefur komið í gegnum yngri flokka starf félagsins enda kom hann til félagsins aðeins fimm ára gamall.

Tielemans er miðjumaður sem á leiki fyrir 15 ára, 16 ára og 21 árs landslið Belga. Hann hefur spilað fimm leiki í belgísku deildinni og spilaði allar 90 mínúturnar í 2-0 sigri á Lierse um síðustu helgi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×