Formúla 1

Stefnir í mikla baráttu á milli Mercedes og Red Bull í Kóreu

Rúnar Jónsson skrifar
Lewis Hamilton var afslappaður eftir æfingarnar.
Lewis Hamilton var afslappaður eftir æfingarnar. Mynd/NordicPhotos/Getty
Formúlu eitt kappaksturinn fer fram, í Suður Kóreu, um helgina. Þetta er í fjórða skiptið, sem keppnin fer fram, á Alþjóðlegu kappakstursbrautinni, í Kóreu, sem staðsett er í Yeongham.

Brautin er stórskemmtileg að aka, og býður upp á mikinn hraða, á fyrsta hluta brautarinnar, þar sem ökumenn ná allt að 320 kílómetra hraða, en á miðhluta, og seinni hluta brautarinnar, blandast saman hraðar, miðlungs og hægar beygjur.

Átján beygjur eru á brautinni, og eru sex af þeim eknar á undir 100 km.hraða, Það er því nokkuð snúið fyrir liðin, að finna hina fullkomnu uppsetningu, á bílunum fyrir keppnina.

Eftir tvær fyrstu æfingarnar, þar sem Lewis Hamilton var fljótastur, þá stefnir í mikla baráttu á milli Mercedes ökumannanna, Rosberg og Hamilton á Mercedes, og Vettel og Webber á Red Bull, um ráspólinn í tímatökunni.

Veðrið gæti spilað stórt hlutverk um helgina, en spáð er rigningu, bæði laugardag og sunnudag, eitthvað sem bæði Raikkonen og Alonso gætu nýtt sér vel.

Tímatakan hefst klukkan 04.50 á laugardagsmorgun, og keppnin er síðan klukkan 05.30 á sunnudag. Allt er þetta í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×