Formúla 1

Vettel í sérflokki og ræsir fyrstur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sebastian Vettel hefru fagnað ófáum sigrum undanfarin ár.
Sebastian Vettel hefru fagnað ófáum sigrum undanfarin ár. Nordicphotos/Getty
Sebastian Vettel hjá Red Bull stóð sig best í tímatökum fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Yeongam í Suður-Kóreu í morgun.

Helsti keppinautur Vettel um heimsmeistaraitil ökuþóra, Spánverjinn Fernando Alonso, náði aðeins fimmta sæti. Lewis Hamilton á Mercedes ræsir við hlið Vettel.

Vettel hefur sextíu stiga forskot á Alonso í stigakeppninni þegar aðeins sex keppnir eru eftir að kappakstrinum í Suður-Kóreu í fyrramálið meðtöldum.

Kappaksturinn í Suður-Kóreu fer fram í fyrramálið klukkan 5:30 að íslenskum tíma. Hann verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport & HD.

Úrslitin úr tímatökunum má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×