Danmörk þrútin af svörtum 1.000 króna seðlum 17. maí 2013 09:28
Danskir 1.000 króna seðlar mynda nær helming þess seðlamagns sem er í umferð í landinu. Sérfræðingar segja þetta merki um glæpahagkerfi í landinu og mikla svarta atvinnustarfsemi. Fjallað er um málið í fríblaðinu Metroxpress. Þar segir að samkvæmt upplýsingum frá seðlabanka Danmerkur samsvarar seðlamagn í umferð í landinu rúmlega 65 milljörðum danskra kr. Af þessari upphæð eru rúmlega 32 milljarðar danskra kr. í 1.000 króna seðlum. Fjármálasérfræðingurinn John Norden segir í samtali við blaðið að hann telji að þetta mikla magn af 1.000 króna seðlum, sem sjaldan komi almennt í umferð, sé notað í glæpastarfsemi og svartri atvinnu. Lögreglan í Kaupmannahöfn staðfestir þessa skoðun Norden og segir að þegar hún leggi hald á reiðufé hjá glæpamönnum sé það yfirleitt í 1.000 króna seðlabúntum. „Þeir sem standa í fíkniefnaviðskiptum vilja ekki hafa litla seðla eða mynt í fórum sínum. Þeir vilja heldur skipta slíku í stærri seðla,“ segir lögreglustjórinn Steffen Steffensen í samtali við blaðið.
Mest lesið Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira