Formúla 1

Nico Rosberg stal ráspólnum óvænt

Birgir Þór Harðarson skrifar
Rosberg var ánægður með hringinn sinn sem var fullkominn frá sjónarhóli ökumannsins.
Rosberg var ánægður með hringinn sinn sem var fullkominn frá sjónarhóli ökumannsins.
Það gerðist óvænt í tímatökum fyrir kappaksturinn í Barein í hádeginu að Nico Rosberg á Mercedes setti besta tíma og náði auðveldlega ráspól. Sebastian Vettel varð annar í Red Bull-bílnum.

Liðin voru þegar farin að stilla upp keppnisáætlunum í síðustu lotu tímatökunnar. Jenson Button mun ræsa tíundi eftir að hafa ekki sett tíma í síðustu lotu. Hann fær því að ráða hvaða dekkjum hann ræsir á. Þá ólk Felipe Massa sinn síðasta og hraðasta hring á hörðu dekkjagerðinni.

"Ég átti ekki von á þessu því við áttum í vandræðum í gær. Það var gaman að sjá Rosberg vinna sig upp í efsta sætið," sagði Ross Brawn liðstjóri Merceds-liðsins. Liðsfélagi Rosbergs er Lewis Hamilton sem fær fimm sæta refsingu á ráslínunni því skipta þurfti um gírkassa í bíl hans eftir æfingar í morgun. Hamilton ræsir þvi níundi.

Mark Webber fær líka fimm sæta refsingu fyrir atvikið í Kína fyrir viku síðan og ræsir því sjöundi.

Kimi Raikkönen var í vandræðum með jafnvægið í Lotus-bíl sínum og náði aðeins níunda besta tíma í síðustu lotu tímatökunnar. Hann ræsir áttundi því Hamilton er færður aftur fyrir hann.

Paul di Resta verður fimmti á ráslínunni eftir að hafa verið frábær í öllum tímatökulotunum. Hann ekur Force India-bíl. Liðsfélagi hans Adrian Sutil verður sjötti. Felipe Massa verður fjórði á eftir liðsfélaga sínum hjá Ferrari, Fernando Alonso.

Estiban Gutierrez verður aftastur eftir að hafa átt ömurlega tímatöku fyrir Sauber. Hann komst ekki upp úr fyrstu lotunni og var með refsingu á bakinu síðan í Kína.

Fyrir framan Gutierrez er botnslagurinn í algleymingi milli Caterham og Marussia. Í dag var erfitt að skilja á milli, Charles Pic á Caterham verður átjándi, Jules Bianchi í Marussia þar á eftir, svo liðsfélagar þeirra.

Enn er Williams-liðið í vandræðum með nýstárlegt fjöðrunarkerfi. Pastor Maldonado verður sautjándi eftir að hafa ekki komist upp úr fyrstu lotunni. Valterri Bottas, liðsféagi hans, setti raunar nákvæmlega sama tíma í fyrstu lotunni en var skráður sextándi svo hann komst áfram. Hann ræsir fimmtándi á morgun.

Röð ökumanna á morgun1. Nico Rosberg, Mercedes

2. Sebastian Vettel, Red Bull

3. Fernando Alonso, Ferrari

4. Felipe Massa, Ferrari

5. Paul Di Resta, Force India

6. Adrian Sutil, Force India

7. Kimi Raikkonen, Lotus

8. Mark Webber, Red Bull

9. Lewis Hamilton, Mercedes

10. Jenson Button, McLaren

11. Romain Grosjean, Lotus

12. Sergio Perez, McLaren

13. Daniel Ricciardo, Toro Rosso

14. Nico Hulkenberg, Sauber

15. Valtteri Bottas, Williams

16. Jean-Eric Vergne, Toro Rosso

17. Pastor Maldonado, Williams

18. Charles Pic, Caterham

19. Jules Bianchi, Marussia

20. Giedo van der Garde, Caterham

21. Max Chilton, Marussia

22. Esteban Gutierrez, Sauber

Bein útsending frá kappakstrinum hefst í fyrramálið klukkan 11.30.


Tengdar fréttir

Vettel: Tími Rosbergs óbætanlegur

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel var ásamt Fernando Alonso talinn líklegastur til að ná ráspól í tímatökum dagsin. Hann segir ráspólstíma Nico Rosbergs hafa verið óbætanlegan og hafa komið á óvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×