Forseti Bayern handtekinn fyrir skattsvik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. apríl 2013 14:30 Nordic Photos / Getty Images
Uli Höness, forseti Bayern München, var handtekinn af þýsku lögreglunni fyrri skattsvik í síðasta mánuði. Honum var svo sleppt gegn því að greiða fimm milljónir evra, 762 milljónir króna, í tryggingu. Höness liggur nú undir grun fyrir að hafa stundað skattsvik í Þýskalandi með því að fela háar fjárhæðir í svissneska bankakerfinu. Þýsk lög heimila aðilum með peninga í skattaskjólum að koma með þá heim án þess að þeim sé refsað, ef þeir stíga fram með upplýsingar um undanskot sjálfviljugir. Þeir þurfa þó að greiða af þeim skatta og sektir. Það var það sem Höness gerði í byrjun þessa árs en handtakan gefur til kynna að ekki hafi verið allt með felldu í hans tilfelli. Málið hefur vakið talsverða athygli í Þýskalandi og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, lýsti meðal annars vonbrigðum sínum með gjörðir Höness. Sjálfur hefur hann viðurkennt að hafa gert mistök en að hann vilji bæta fyrir þau. Höness var viðstaddur þegar að Bayern vann 4-0 stórsigur á Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Höness gæti fengið fangelsisdóm verði hann ákærður og sakfelldur.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira