Formúla 1

Massa segir Ferrari eiga séns á titli

Birgir Þór Harðarson skrifar
Massa hefur trúa á Ferrari-liðinu í ár.
Massa hefur trúa á Ferrari-liðinu í ár. nordicphotos/afp
Brasilíumaðurinn Felipe Massa, ökumaður Ferrari í Formúlu 1, segist handviss um að að Ferrari-liðið sé nógu öflugt til að berjast um heimsmeistaratitil á tímabilinu sem hafið er. Formúla 1 snýr aftur í Kína um næstu helgi.

Árangur Ferrari hefur verið ágætur í mótunum tveimur sem búin eru. Fernando Alonso varð annar í Ástralíu og Massa fjórði. Liðið gerði síðan mistök í Malasíu sem varð til þess að Alonso gat ekki klárað en Massa varð fimmti.

„Við höfum náttúrlega aðeins ekið tvö mót en ég hef góða tilfinningu fyrir tímabilinu,“ sagði Massa sem er fjórum stigum á undan liðsfélaga sínum í titilbaráttunni. Hann segir mörg lið eiga möguleika á að skáka Red Bull. „Okkar lið er eitt þeirra.“

„Á meðan við náum að þróa bílinn í rétta átt og skilum góðum úrslitum á brautinni eigum við möguleika,“ segir Massa.

Red Bull-liðið hefur stolið senunni enn á ný þetta tímabilið og er efst í liðakeppninni með 66 stig. Lotus og Ferrari deila öðru sæti með 40 stig hvert og Mercedes er í fjórða sæti með 37 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×