Formúla 1

Alonso vann í Kína

Birgir Þór Harðarson skrifar
Alonso vann mótið og var mjög ánægður með það.
Alonso vann mótið og var mjög ánægður með það.
Ferrari-ökuþórinn Fernando Alonso vann kínverska kappaksturinn í Sjanghæ í morgun eftir að Ferrari-liðið stillti upp frábærri keppnisáætlun. Finninn Kimi Raikkönen varð annar í Lotus-bílnum.

Keppnin var spennandi alveg til enda og leiddu fjölmargir mótið á mismunandi tímum. Dekkin skiptu miklu máli enda voru mýkri dekkin nánast ónothæf vegna þess hve hratt þau eyddust. Sebastian Vettel og Jenson Button ásamt Nico Hulkenberg ræstu því á harðari gerðinni og gerði þá alla á mismunandi tímapunktum að mögulegum sigurvegurum.

Ferrari-bílarnir tveir náðu frábæru starti og komust á undan Raikkönen fyrir fyrstu beygju. Startið hjá Finnanum var lélegt en hann hélt þó fjórða sætinu fyrstu hringina. Hamilton þurfti svo fljótlega að víkja úr fyrsta sætinu fyrir Alonso og Massa.

Hamilton varð á endanum þriðji en þurft að hafa fyrir því á síðasta hring þegar Vettel sótti hart að honum. Aðeins sekúndubrot skildu þá að þegar yfir endalínuna var ekið. Jenson Button varð fimmti fyrir McLaren og Felipe Massa sjötti.

Daniel Ricciardo í Toro Rosso varð sjöundi eftir að hafa átt stórkoslega tímatökur í gær og staðið sig vel í dag. Paul di Resta náði að sigla Force India-bílnum í höfn í áttunda sæti á undan Romain Grosjean og Nico Hulkenberg.

Vettel leiðir enn stigabaráttuna með 52 stig en Kimi Raikkönen er nú með 49 og Alonso 43. Það lítur því allt úf fyrir að titilbaráttan verði jöfn og skemmtileg í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×