Valskonur tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2013 21:07 Jaleesa Butler vantaði bara eina stoðsendingu í þrennuna. Mynd/Stefán
Kvennalið Vals tryggði sér sæti í úrslitakeppninni með því að vinna fjögurra stiga sigur á deildarmeisturum Keflavíkur, 96-92 í Vodfone-höllinni í kvöld. Valsliðið endar í fjórða sæti deildarinnar sama hvernig fer í lokaumferðinni. Keflavíkurkonur hafa þar með tapað báðum leikjum sínum síðan að þær tryggðu sér deildarmeistaratitilinn á dögunum því þær töpuðu fyrir KR á laugardaginn var. Keflavík og Valur munu mætast í undanúrslitum úrslitakeppninnar en liðin léku einnig til úrslita í bikarkeppninni. Keflavík vann bikarúrslitaleikinn en Valur hefur unnið báða deildarleiki liðanna eftir áramót. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 26 stig fyrir Val í kvöld og Jaleesa Butler var með 16 stig, 13 fráköst og 9 stoðsendingar. Ragna Margrét Brynjarsdóttir átti einnig mjög góðan leik en hún var með 18 stig og 14 fráköst í kvöld. Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 24 stig fyrir Keflavík og Sara Rún Hinriksdóttir var með 23 stig og 10 fráköst en Keflavíkurliðið lék án Birnu Valgarðsdóttur í kvöld. Valskonur lögðu grunn að sigrinum með frábærum fimm mínútna kafla í kringum leikhlutaskiptin í þriðja og fjórða leikhluta en Valsliðið vann þessar fimm mínútur 20-4 og breytti stöðunni úr 53-61 í 73-65. Keflavíkurkonur komu til baka í lokin en náðu ekki að vinna upp muninn og Valskonur fögnuðu sigri og öruggu sæti í úrslitakeppninni.Valur-Keflavík 96-92 (50-50)Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 26, Hallveig Jónsdóttir 19, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 18/14 fráköst, Jaleesa Butler 16/13 fráköst/9 stoðsendingar/3 varin skot, Ragnheiður Benónísdóttir 8/4 fráköst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 5/4 fráköst/6 stoðsendingar, Þórunn Bjarnadóttir 2, María Björnsdóttir 2.Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 24/5 stolnir, Sara Rún Hinriksdóttir 23/10 fráköst/3 varin skot, Jessica Ann Jenkins 14, Bryndís Guðmundsdóttir 10/6 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 8, Ingibjörg Jakobsdóttir 7, Sandra Lind Þrastardóttir 6.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga Íslenski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn