Íslenski boltinn

Kjartan Henry: Hef ekki gefið upp alla von

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kjartan Henry Finnbogason í leik með KR.
Kjartan Henry Finnbogason í leik með KR. Mynd/Valli
Óvíst er hvort að Kjartan Henry Finnbogason geti spilað með KR í Pepsi-deildinni í sumar, þar sem hann á við þrálát hnémeiðsli að stríða.

Hann missti af síðustu vikum síðasta tímabils þar sem hann fór í aðgerð vegna hnémeiðslanna. Hann meiddist þó strax í upphafi tímabilsins.

„Sumarið var erfitt. Ég fékk áverka á hnéð í byrjun sumars og fann strax að það var eitthvað að. Mér var ekki illt en hnéð fylltist af vökva. Ég fékk þrjár sterasprautur og það var tappað af hnénu. Ég gat samt ekki æft og spilaði bara leikina," sagði Kjartan Henry í samtali við Boltann á X-inu í morgun. Viðtalið má heyra í heild sinni hér fyrir ofan.

„Ég fór svo í aðgerðina 7. september en þar komu í ljós tvær brjóskskemmdir í hnénu. Liðurinn var svo fullur af drasli sem var hreinsað út. Svo var borað í beinið til að reyna að framkalla einhverjar himnur," sagði hann.

„Það hefur ekki gengið enn hjá mér. Ég er enn jafn slæmur og daginn eftir aðgerðina. Það er búið að reyna mjög á þolinmæðina hjá mér."

„Ég er enn hjá sjúkraþjálfara 1-2 sinnum á dag, aðallega til að styrkja vöðvana í kringum hnéð. Ég hef eitthvað reynt að hlaupa í vatni og á hlaupabretti en hnéð hefur alltaf túttnað út aftur."

„Svo virðist sem að hnéskelin sé í einhverju ójafnvægi og dragist til hliðar. Mögulega þarf ég að fara í aðra aðgerð og létta aðeins á því og tylla henni á sína braut. Ef það verður gert er sumarið búið hjá mér."

Kjartan Henry ætlar þó að reyna aðrar lausnir áður en hann tekur ákvörðun um hvort hann leggist undir hnífinn.

„Ég er með mjög góðan hóp af sjúkraþjálfurum og ég er bjartsýnn á að þetta lagist. Ef ekki þá er ég ekki það gamall að þetta sé algjörlega búið."

Hann segist ákveðinn í því að spila aftur knattspyrnu. „Ef ég næ ekki að spila í sumar ætla ég að vinna í hnénu þangað til að ég verð orðinn góður. Mér ekki það illt að ég þurfi að leggja skóna á hilluna, það er ekki séns."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×