Formúla 1

Lotus á toppnum eftir fyrstu æfingar

Birgir Þór Harðarson skrifar
Raikkönen var fljótur í Lotus-bílnum í dag.
Raikkönen var fljótur í Lotus-bílnum í dag. nordicphotos/afp
Kimi Raikkönen, ökuþór Lotus-liðsins í Formúlu 1, varð fljótastur á æfingum dagsins í Jerez í dag. Þetta var síðasti æfingadagurinn í Jerez af fjórum.

Tími Raikkönen var örlítið betri en tími Jules Bianchi á Force India-bíl en sá hafði vermt efsta sæti listans nánast allan daginn. Bianchi var talinn vera líklegur kandídat í annað keppnissæti liðsins en Force India hefur aðeins tryggt sér starfskrafta Paul di Resta fyrir keppnistímabilið 2013.

Sebastian Vettel ók Red Bull-bíl sínum 0,4 sekúndum hægar en Raikkönen um Jerez-brautina og varð þriðji. Lewis Hamilton ók Mercedes-bílnum í dag og fékk eitthvað fyrir sinn snúð í fyrsta sinn því bíllinn bilaði ekki eins og síðast. Hamilton varð sjötti í röðinni.

Annars var æfingin hljóðlát og gekk vel fyrir sig. Liðin einbeittu sér að lengri vegalengdum og nýliðarnir fengu tækifæri til að átta sig á því hvernig Pirelli-dekkin virka.

Barcelona er næsti áfangastaður á æfingadagatalinu í ár. Þar hefjast æfingar 19. febrúar og standa í fjóra daga.

Bestu tímar dagsins
PÖkuþórLiðTímiBil
1RaikkonenLotus1:18,148 
2BianchiForce India1:18,1750,027
3VettelRed Bull1:18,5650,417
4GutierrezSauber1:18,6690,521
5VergneToro Rosso1:18,7600,612
6HamiltonMercedes1:18,9050,757
7PerezMcLaren1:18,9440,796
8BottasWilliams1:19,8511,703
9de la RosaFerrari1:20,3162,168
10PicCaterham1:21,1052,957
11RaziaMarussia1:21,2263,078
12Di RestaForce India1:23,4355,287



Fleiri fréttir

Sjá meira


×