Nýdönsk í fyrsta sinn til Noregs 20. desember 2012 06:00 til noregs Hljómsveitin Nýdönsk spilar í Noregi í fyrsta sinn í janúar á næsta ári. Mynd/Óskar andri „
Við hlökkum mikið til. Það er alltaf gaman að breyta til,“ segir Jón Ólafsson úr Nýdönsk. Hljómsveitin spilar í fyrsta sinn í Noregi 26. janúar á næsta ári og verða tónleikarnir í höfuðborginni Ósló. „Við vorum með tónleika í Danmörku í fyrra. Þar var fullt hús, langmest Íslendingar en eitthvað af útlendingum slæddust með. Einhver Norðmaður sem sá okkur þar var svo hrifinn að hann vildi endilega flytja okkur inn til Noregs.“ Nýdönsk hélt tónleika í Hörpu í haust til að fagna 25 ára afmæli sínu. Jón og félagar hafa ekki sjálfir gert sér dagamun til að fagna áfanganum. „Við höfum ekki haft tíma til að fagna þessu afmæli. Við förum út degi fyrr og getum þá kannski farið út að borða og haldið upp á afmælið í leiðinni.“ Nýdönsk breytti nafninu sínu í Arctic Orange þegar hún ætlaði að slá í gegn erlendis hér á árum áður. Jón segir að vissulega sé þetta mikið meik í Noregi en efast um að nafninu verði breytt. „Ætli við myndum ekki frekar nota nafnið sem við notuðum í raun og veru, sem var Kind. En ég hugsa að við notum bara Nýdönsk. Það skilst vel þarna úti.“ -fb
Tónlist Mest lesið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Vinsælustu sýningu leikhússins frestað vegna óvæntra meiðsla Lífið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Lífið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Apinn að vaxa upp úr apabangsanum Lífið Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Bíó og sjónvarp Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Tónlist Fleiri fréttir Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira