Lesum í sporin! Steingrímur J. Sigfússon skrifar 23. ágúst 2012 06:00 Í eðlilegri gremju sinni og vonbrigðum með hrunið og eftirköst þess beina margir óánægju sinni að sitjandi valdhöfum, okkur sem tókum við keflinu 1. febrúar 2009, og finnst að hægt hafi gengið að kippa hlutunum í lag. Og með rétti má segja að almenningur hafi hvoru tveggja, mikið til síns máls og rök fyrir sinni óánægju. Auðvitað hefur gengið hægt og hægar en við öll vildum að komast út úr erfiðleikunum. Samt er það þannig að ef raunsær mælikvarði og sanngjarn er lagður á hlutina var vart við öðru að búast. Áfallið hér var risavaxið og horfurnar satt best að segja svo dapurlegar fram eftir og út árið 2009 og inn á árið 2010 að séð í því ljósi er bjart yfir Íslandi nú. Óveðurský þjóðargjaldþrots, efnahagslegrar bráðnunar, stórfellds landflótta eða annarra stórhörmunga, sem ýmsir spáðu, eru að baki. Hitt er svo sannarlega einnig auðskilið að landsmenn eru enn svekktir yfir því sem hér gerðist, margir ganga sárir frá leiknum, áttu betra skilið af stjórnvöldum sínum. Svo ekki sé nú talað um aðra og enn verri hluti eins og hvernig nýfrjálshyggju-, græðgis- og siðleysistíminn fór með okkur almennt talað. Að hve miklu leyti við vorum sem þjóð saklausir, óafvitandi leiksoppar þeirrar hugmyndafræði og að hve miklu leyti við vorum auðveld/leiðitöm bráð skal ósagt látið. (Seinni tíma viðfangsefni að glíma við það. Hinir pólitísku, félagslegu og sagnfræðilegu þættir þessara atburða munu líka taka sinn tíma í úrvinnslu). Já, auðvitað er eðlilegt að farvegur gremju og svekkelsis verði meðal annars sá að gefa sitjandi ríkisstjórn langt nef og falla fyrir áróðri andstæðinga hennar (sem eru mörg helstu inngrónu valdaelement gamla tímans svo sem Sjálfstæðisflokkurinn, Morgunblaðið, sérhagsmunasamtök og þjóðrembuafturhaldið). Það er auðvelt að loka sig af frá veruleikanum, raunheiminum, og segja sem svo; það að hér á Íslandi tækifæranna skuli ekki drjúpa smjör af hverju strái er auðvitað allt þessari ömurlegu ríkisstjórn að kenna. Á góðri stund geta menn bætt í og sagt sem svo að hér hafi ekkert hrun orðið, bara svokallað hrun, það sé bara áróður að hinum óskeikulu hafi orðið eitthvað á. Það vottar fyrir „kostuðum" tilburðum til að umskrifa samtímasöguna þannig að þeir sem fóru með völd og bera stjórnskipulega og pólitíska ábyrgð á hruninu hafi í raun og veru bjargað Íslandi með snilld sinni. Hvað um það, dokum við og reynum að greina þetta á yfirvegaðan hátt:Það sem gerðist Hrunið er staðreynd. Á upplýsingaöld tækist ekki svæsnustu ritskoðunar- og harðstjórnaröflum að þurrka út þá staðreynd. Eitthvað fór úrskeiðis. Það þurfti að biðja guð að blessa Ísland. Erfiðir og tvísýnir tímar fóru í hönd. Ísland var fátækum vopnum búið, í vondu sviðsljósi sem óþekktarormur sem farið hafði illa að ráði sínu og trausti rúið, í raun út á við og inn á við. Við treystum engu hér heima, ekki okkur sjálfum nema með miklum fyrirvörum (gerum ekki nema að takmörkuðu leyti enn) og fáir treystu okkur (ekki einu sinni „vinir" okkar í öðrum norrænum ríkjum) nema gegnum ábyrgð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Við þurftum á utanaðkomandi aðstoð að halda. Það er ekkert sem núverandi ríkisstjórn fann upp á, heldur sóttu sjálfstæðismenn, þeir Geir Haarde, Árni Mathiesen og Davíð Oddson um þá hjálp. Með öðrum orðum; það var orðið eitthvert vesen áður en við tókum til við rústabjörgunina, ekki satt? Að gamni eða hálfkæringi slepptum (sem auðvitað er tæpast viðeigandi þegar svo dýrkeyptir hlutir í sögu þjóðar eiga við), þá tók núverandi ríkisstjórn við erfiðustu aðstæðum sem nokkur slík á lýðveldistímanum hefur fengið til að glíma við. Annars staðar, þar sem áföllin voru þó miklum mun minni, gengur hægt að koma hlutunum aftur í lag. Töfrasprotarnir og kraftaverkin sem lýðskrums- og glanspappírsfólkið þykist hafa á öllum fingrum eru því miður bara til í umræðunni en ekki í hinum erfiða raunheimi þröngra kosta, blóðs, svita og tára til að forða Íslandi frá niðurlægingu og gjaldþroti. Allt of margir trúðu spámönnum góðærisins og útrásarinnar um hina fórnarlausu og tímalausu sælu, það væri bara endalaust hægt að græða á daginn og grilla á kvöldin. Það kæmi aldrei neinn reikningur, aldrei neinn morgundagur, það þyrfti aldrei að borga lánin, lánstraust í útlöndum væri ótakmarkað, við værum miklu betri en Danir í bisness, við værum best í heimi. Hvað er sumt þetta sama fólk að segja okkur í dag? Er það kannski að öll okkar vandamál séu ríkisstjórninni að kenna og henni einni. Er e.t.v. verið að bera á borð fyrir okkur skyndibitapólitík, innihaldslausa dellu, sem er eins haldlaus og kenningin um óendanleika hins eyðsludrifna græðgisgóðæris sem var tekið að láni. Eigum við ekki að hugsa okkar gang áður en við látum ljúga að okkur blákalt, tvisvar í röð, af sömu aðilum. Það eru engin kraftaverk í boði á niðursettu verði, það er ekki hægt að láta skuldir og erfiðleika gufa upp, það eru engar kanínur og enginn hvítur hattur. Þetta sem þarf er vinna, þrautseigja, raunsæi, kjarkur og úthald. Þetta er hægt og það sem meira er; þetta er að takast. Ísland er að komast, merkilega lítt skaddað sem velferðarsamfélag, út úr erfiðleikum sínum. Við erum ekki sloppin en það miðar vel. Það er enn síður ástæða til að missa móðinn nú en fyrir ári eða tveimur síðan, þó vissulega varpi dapurt ástand í Evrópu og heimsbúskapnum skugga á.Barningur á móti, en miðar samt Já; það hefur gengið hægt, þetta hefur verið barningur, við sem stjórnvöld þessa ævintýralega tíma höfum oft tekið umdeilanlegar ákvarðanir sem e.t.v hafa ekki alltaf reynst þær réttu. Nema hvað? Gera menn ekki mistök á hinum venjulegustu tímum, hvað þá þegar hlaupið er með slökkvitækið milli elda og bjargað úr rústum mánuðum og misserum saman? En hefði þeim sem hlóðu upp eldiviðnum og fóru ógætilega með „góðæriskyndilinn" gengið betur að slökkva bálið, reykræsta húsið, hreinsa út, glerja og mála og flytja inn aftur? Bara þetta að lokum; lesum í sporin, látum spámenn þeirra hluta sem áður hafa reynst léleg vísindi um framtíðina hafa fyrir því að sannfæra okkur áður en við trúum þeim. Enn betra; látum aldrei aftur fagurgala, lyga- og sérgæskuþvælu bera heilbrigða skynsemi ofurliði á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steingrímur J. Sigfússon Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Þau sem hafna framförum Birkir Ingibjartsson Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Sjá meira
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun