Skoðun

Tillögur sem skaða ferðaþjónustu

Stuðningur almennings við náttúruvernd hefur aukist að undanförnu, ekki síst vegna vaxtarmöguleika í ferðaþjónustu. Ferðamönnum sem hingað koma fjölgar mikið á milli ára og með því aukast gjaldeyristekjur um tugi milljarða króna.

Óspillt náttúra er forsenda þessa vaxtar. Í könnun Ferðamálastofu síðastliðið sumar sögðu tæp 80% erlendra ferðamanna að íslensk náttúra hefði haft mikil áhrif á þá ákvörðun að sækja Ísland heim og 72% töldu náttúruna helsta styrkleika íslenskrar ferðaþjónustu. Viðtöl fjölmiðla við erlenda ferðamenn verða heldur ekki til þess að draga úr væntingum til náttúrutengdrar ferðaþjónustu.

Nýverið birtist t.d. viðtal í dagblaði við 75 ára Bandaríkjamann sem ferðast hefur til 62 landa. Vitnisburður hans undirstrikar hvers konar perla landið okkar er: „Íslensk náttúra er hreint út sagt ótrúleg. Fossarnir eru alveg sérstaklega fallegir. Ég hef séð marga fossa í Bandaríkjunum, en þeir jafnast ekkert á við fossana hér á Íslandi. Landslagið er stórbrotið og ég held að það sé mjög erfitt að komast í tæri við sambærilegar náttúruperlur og finna má hér á Íslandi annars staðar í heiminum.“

Vegna aukins mikilvægis ferðaþjónustu er fróðlegt að kynna sér afstöðu Samtaka ferðaþjónustunnar til draga að þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða (Rammaáætlun). Samtökin telja að of mörgum svæðum verði fórnað undir virkjanir samkvæmt drögunum. Þau vekja meðal annars athygli á að fyrirhugaðar virkjanir á hálendinu, við jaðar stærsta þjóðgarðs Evrópu, muni eyðileggja verðmæt víðerni sem ferðmenn ferðast um langa leið til að njóta. Þá leggjast samtökin einnig gegn tillögum um virkjanir á jarðhitasvæðum Suðvesturlands með þeim rökum að svæðin séu gríðarlega mikilvæg fyrir styttri náttúruskoðunarferðir frá höfuðborgarsvæðinu, t.d. fyrir sívaxandi fjölda ráðstefnugesta. Hægt er að kynna sér umsögn samtakanna í heild sinni á vef rammaáætlunar, rammaaaetlun.is.

Á sama tíma og það rennur upp fyrir flestum hversu dýrmæt auðlind náttúran er þá gera tillögur rammaáætlunar ráð fyrir að fórna fjölda verðmætra svæða undir lítt arðbærar virkjanir. Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra eru nú með þessi drög á sínu borði og vinna úr þeim tillögu sem verður vonandi lögð fyrir Alþingi á næstunni. Mikilvægt er að sú tillaga taki ríkt tillit til vaxandi ferðaþjónustu.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×