Messi lagði upp bæði mörk Barca | Puyol meiddist illa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2012 18:00 Mynd/AFP
Barcelona hélt áfram sigurgöngu sinni í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þegar liðið sótti sigur til Lissabon í kvöld. Barcelona vann þá 2-0 sigur á heimamönnum í Benfica þar sem Lionel Messi lagði upp bæði mörkin. Barcelona varð fyrir áfalli í seinni hálfleik þegar fyrirliðinn Carles Puyol féll mjög illa og var borinn af velli líklega handleggsbrotinn. Barcelona var ekki lengi að komast yfir þegar Alexis Sánchez skoraði á 6. mínútu eftir sendingu frá Lionel Messi. Benfica átti nokkrar góðar sóknir í kjölfarið og fékk dauðafæri á 11. mínútu þegar Victor Valdés varði vel frá Lima. Alexis Sánchez og Lionel Messi fengu báðir frábær færi til að bæta við mörkum í fyrri hálfleiknum en staðan var enn 1-0 í hálfleik. Cesc Fabregas skoraði loksins á 56. mínútu og kom markið eftir frábæran einleik og stoðsendingu frá Lionel Messi. Fabregas fékk boltann einn á móti markverði og skoraði örugglega. Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, meiddist þrettán mínútum fyrir leikslok og það var ljótt að sjá. Hann lenti illa á hendinni og virtist annaðhvort handleggsbrotna eða fara illa úr lið. Barca verður ekki bara án Puyol í næsta Evrópuleik því Sergi Busquets fékk rautt spjald á 88. mínútu.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira